Sjóveikin gæti orðið næsta prófraun

Marie-Gaëlle Robles, sem tók við embætti sendiherra Frakklands á Íslandi í ágústlok, naut sín við sendiherrabústaðinn á fyrsta snjódegi vetrar. mbl.is/Eyþór

Marie-Gaëlle Robles, nýr sendiherra Frakklands á Íslandi, segist aldrei hafa orðið sjóveik og er stolt af því. Hún viðurkennir þó að hún hafi enn ekki látið reyna á sjóþolið í íslenskum öldugangi.

„Mig langar að sigla hér við Ísland,“ segir hún í samtali við blaðamann Morgunblaðsins í huggulegum sendiherrabústaðnum við Skálholtsstíg. Hún veit að sjórinn getur verið úfinn hér við land en það dregur ekki úr áhuganum.

Robles er raunar ýmsu vön þegar kemur að sjóferðum. Áður en hún tók við sendiherrastarfinu var hún pólitískur ráðgjafi yfirmanns franska sjóhersins. Starfsstöð hennar var í París, fjarri sjónum, en sjóliðarnir vildu að hún kynntist starfseminni af eigin raun.

Hún fór því um borð í flugmóðurskip og kafbáta, ferðaðist með hraðbátum og var eitt sinn flutt með þyrlu út á skip á hafi úti. „Ég velti því fyrir mér hvort þeir væru kannski að prófa mig,“ segir hún.

Þyrluflugið reyndist þó ekkert óvenjulegt í augum sjóliðanna heldur einfaldlega ein leiðin til að komast um borð þegar skipin voru úti á hafi.

Aftur á eldfjallaeyju

Robles tók við embætti sendiherra Frakklands á Íslandi í lok ágúst sl. Þetta er í fyrsta sinn sem hún gegnir sendiherrastöðu en hún hefur starfað í frönsku utanríkisþjónustunni nær allan sinn starfsferil.

Hún vissi strax að loknu námi að hún vildi verða diplómati og fékk snemma áhuga á öryggis- og varnarmálum. Hún starfaði meðal annars hjá fastanefndum Frakklands við Sameinuðu þjóðirnar í Genf og New York, þar sem hún sinnti vopnaeftirlitsmálum. Síðar starfaði hún í Kaupmannahöfn, þar sem hún sinnti málefnum Grænlands og kynntist norðurslóðamálum.

Hún var einnig staðgengill sendiherra í Katar og kom þar meðal annars að brottflutningi fólks frá Afganistan. Hjá franska sjóhernum sinnti hún síðan málefnum Norður-Atlantshafsins. Þegar tækifæri gafst til að sækja um sendiherrastöðu á Íslandi þurfti hún því ekki að hugsa sig lengi um.

Robles er frá Bretagne á vesturströnd Frakklands en fæddist á eyjunni Réunion í Indlandshafi, þar sem foreldrar hennar störfuðu um skeið. Henni þykir dálítið skondið að vera nú aftur komin á eldfjallaeyju.

Veðrið hér kemur henni heldur ekki með öllu á óvart. Íbúar Bretagne séu vanir bæði roki og rigningu.

„Þannig að mér líður eins og heima hjá mér,“ segir hún kímin.

Samheldnin á sjónum

Það sem stendur helst upp úr hjá Robles frá árunum í sjóhernum er samheldnin um borð í skipunum.

Hún segir að þegar áhöfn sé úti á hafi, langt frá heimahögum, þurfi allir að treysta hver á annan. Fólk sé fjarri fjölskyldu sinni, stundum við erfiðar aðstæður, og geti átt bæði góða og slæma daga.

„Þá þurfa allir að styðja hver annan. Þetta er það sem kallað er samheldni áhafnarinnar og hún skiptir gríðarlega miklu máli í sjóhernum. Þetta er ekki bara slagorð heldur raunveruleikinn.“

Þessa hugsun vill hún taka með sér inn í sendiherrastarfið. Starfsfólk sendiráða sé sömuleiðis oft langt frá heimalandi sínu og fjölskyldu og þurfi að geta reitt sig hvert á annað.

Sjálf er Robles einnig fjarri heimahögum og fjölskyldu en segir Íslendinga hafa tekið sér afar vel frá því hún kom til landsins í lok ágúst. Henni er sérstaklega minnisstæð móttakan hjá Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, þegar hún afhenti trúnaðarbréf sitt skömmu eftir komuna. Veðrið hafi verið einstaklega fallegt þann dag og henni fundist hún ná síðustu dögum íslenska sumarsins. Þá kom henni á óvart að sjá norðurljós strax í september, en hún hefur mikinn áhuga á ljósmyndun.

Hún er einnig byrjuð að læra íslensku en örnefni á borð við Fáskrúðsfjörð og Eyjafjallajökul reynast henni nokkrir tungubrjótar. Hún veltir því fyrir sér hvort næsta áskorun á samfélagsmiðlum sendiráðsins eigi að vera að spreyta sig á framburði íslenskra orða.

Robles segir að fyrsta sendiherrastarfið hafi að mörgu leyti verið viðbrigði þrátt fyrir langa reynslu af utanríkisþjónustunni. Ekki síst vegna þess hversu ólíkum verkefnum þurfi oft að sinna á einum og sama deginum.

Hún geti byrjað daginn á viðræðum um alþjóðamál, næst þurft að skipuleggja franska kvikmyndahátíð og síðan tekið á móti fyrirtækjum sem hafi áhuga á viðskiptum milli landanna. Inn á milli komi upp mál sem varða franska ferðamenn, til dæmis þegar vegabréf týnist.

Og stundum þurfi hún að setjast niður með blaðamanni, bætir hún við og hlær.

Mikilvægt þrátt fyrir herleysi

Öryggis- og varnarmál eru meðal þeirra málaflokka sem Robles vill leggja sérstaka áherslu á hér á landi.

Spurð hvers Frakkar ætlist til af herlausu Íslandi í varnarsamstarfinu beinir hún athyglinni að því sem landið leggur þegar af mörkum.

„Ísland hefur engan her en er engu að síður hernaðarlega mikilvægt,“ segir hún.

Hún bendir á að Ísland gegni mikilvægu hlutverki á Norður-Atlantshafi og aðstaðan hér geri bandamönnum kleift að sinna verkefnum sínum. Frakkar meti það mikils.

Viðvera bandamanna á svæðinu hafi aukist og Frakkar haldi áfram að sinna verkefnum hér. Hún bendir þó á að ekki sé alltaf greint opinberlega frá hernaðaraðgerðum.

Í júlí undirrituðu utanríkisráðherrar Íslands og Frakklands viljayfirlýsingu um aukið samstarf ríkjanna. Robles segir hana marka skýra stefnu sem hún vilji fylgja eftir.

En hvernig eiga Evrópuríki að bregðast við ef Bandaríkin draga úr framlagi sínu til varna álfunnar?

„Hvað hefurðu margar klukkustundir?“ spyr hún.

Frakkar hafi lengi talað fyrir því að Evrópuríki axli meiri ábyrgð á eigin öryggi, meðal annars með aukinni framleiðslu varnarbúnaðar og nánara samstarfi evrópskra fyrirtækja.

Þótt ríkin verði áfram bandamenn innan NATO þurfi Evrópa að geta varið sig betur.

Hún vísar til ágengari afstöðu Rússlands gagnvart Evrópu og fjölþáttaógna sem Evrópuríki hafi orðið fyrir. Mikilvægt sé að geta varið íbúana án þess að magna spennuna.

Bjallan úr flakinu

Robles vill einnig efla viðskipti, menningarsamstarf og pólitísk tengsl Íslands og Frakklands. Hún sér meðal annars tækifæri í nýsköpun tengdri sjávarútvegi.

Í heimsókn í Íslenska sjávarklasann vakti athygli hennar hvernig íslensk fyrirtæki nýta meðal annars fiskroð og þang til framleiðslu nýrra vara. Hún kannast við svipaða starfsemi frá Bretagne þar sem atvinnulífið byggist á hafinu að miklu leyti.

Hún segist hins vegar hafa vitað minna um söguleg tengsl þjóðanna áður en hún kom hingað. Það breyttist þegar 90 ár voru liðin frá því að franska rannsóknarskipið Pourquoi-Pas?, sem merkir „Hvers vegna ekki?“, fórst við Álftanes á Mýrum árið 1936.

Robles varð undrandi á því hve djúp spor slysið hafði markað í íslensku samfélagi. Eftir minningarathafnirnar í september hafði fjölskylda samband við sendiráðið og bauðst til að afhenda brot úr bjöllu skipsins sem hún hafði varðveitt.

Hún segist ekki hafa áttað sig á því hversu margir Íslendingar þekktu sögu skipsins. Franskir sjómenn hafi stundað veiðar við Ísland um langa hríð og enn megi finna grafir þeirra víða um land.

Á næsta ári hyggst franska sendiráðið minnast þess að 80 ár verða liðin frá því að Henri Voillery, fyrsti sendiherra Frakklands á Íslandi, afhenti trúnaðarbréf sitt árið 1947. Robles segir viðburði í undirbúningi og að einnig komi til greina að gefa út rit um sögu samskipta þjóðanna.

Sjálf á Robles þó enn eftir að fara á sjó hér við land.

Þegar blaðamaður segir frá eigin sjóveiki í Herjólfi haggast Robles þó ekki. Hún vill enn komast á sjó hér við land og sjá hvort sjóþolið standist íslenskan öldugang.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅