Lést aðeins 24 ára

Rachel Apa er látin aðeins 24 ára.

Rachel Apa er látin aðeins 24 ára. Ljósmynd/New York-maraþonið

Rachel Apa, 24 ára bandarískur hlaupari, lést eftir að hafa hnigið niður undir lok fyrsta maraþonhlaups síns í New York.

Faðir hennar sagði við The New York Times að dánarorsökin hefði verið rákvöðvalýsa, ástand sem felur í sér niðurbrot vöðva.

Apa hneig niður við um það bil 24. míluna í Central Park. Áhorfendur hófu endurlífgun áður en heilbrigðisstarfsfólk hlaupsins notaði hjartastuðtæki. Læknar reyndu síðan að bjarga henni í meira en sex klukkustundir eftir að hún var flutt á bráðamóttöku.

„Þetta er óskiljanlegt. Fullkomin heilsa, í fullkomnu formi, 24 ára gömul,“ sagði faðir hennar, Steve Apa.

Apa, sem áður lék hokkí með háskólaliði, safnaði fé til baráttunnar gegn Parkinsonsveiki í minningu afa síns.

Vitni gagnrýndi viðbragðstíma neyðaraðila en skipuleggjendur svöruðu ekki spurningum áðurnefnds miðils um slíkt.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅