Segir brellur Netanjahús ekki virka á sig

Andstæðingarnir Benjamin Netanyahu og Gadi Eisenkot.

Andstæðingarnir Benjamin Netanyahu og Gadi Eisenkot. AFP

Gadi Eisenkot, sem falið hefur verið að mynda næstu ríkisstjórn Ísraelsríkis, segir „brellur“ andstæðings síns, Benjamins Netanjahús ekki hafa áhrif á sig.

Netanjahú, starfandi forsætisráðherra Ísraels, ítrekaði í dag ákall sitt um sameiginlega stjórn þjóðarinnar með andstæðingi sínum Eisenkot, sem og loforð sitt um að uppræta ógnina frá Íran.

Uppræta ógnina í eitt skipti fyrir öll

Fundur með Eisenkot á fimmtudaginn hafi „aðeins styrkt þá sannfæringu að nauðsynlegt sé að mynda þjóðstjórn“ til að tryggja öryggi Ísraels, sagði Netanjahú í myndbandsyfirlýsingu og bætti við að slík stjórn gæti „upprætt írönsku ógnina í eitt skipti fyrir öll“.

Sagði hann að þessi stjórn yrði skipuð flokkum sem viðurkenna Ísrael „sem ríki gyðinga“.

Hún myndi takast á við öryggisáskoranir, bætti hann við, einkum frá Íran sem hann fullyrti að myndi „ekki hika við að beita kjarnorkuvopnum gegn okkur“.

Erfiðar viðræður

Með stuðningi 67 þingmanna eftir kosningarnar í síðasta mánuði var Eisenkot falið að mynda nýja ríkisstjórn.

Búist er við að viðræðurnar verði erfiðar, sérstaklega þar sem Netanjahú hefur rekið herferð til að grafa undan trúverðugleika flokka arabískra Ísraela, sem fengu metfjölda þingsæta í kosningunum.

Þjóðstjórnin sem Netanjahú leggur til yrði skipuð helstu flokkum gyðinga, allt frá miðju til hægri, en arabísku flokkarnir yrðu útilokaðir.

Eisenkot hefur gefið til kynna að hann væri opinn fyrir því að mynda stjórn með fulltrúum Likud-flokks Netanjahús, sem og flokki fráfarandi fjármálaráðherra, Bezalels Smotrich, að því tilskildu að skuldbinding þeirra við einingu sé „einlæg“.

Þjóðstjórn með Netanjahú sjálfum þykir þó ólíkleg, einkum eftir að Eisenkot fordæmdi „rasíska“ herferð hans gegn arabískum flokkum.

Netanyahu viti að hann hafi tapað

Í gær lét Eisenkot svo þau orð falla að Netanjahú „viti að hann hafi tapað kosningunum“ og sakaði hann um að beita „brellum“ með ákalli sínu um þjóðstjórn.

„Netanjahú kallar eftir viðræðum þótt þær séu þegar hafnar, hann segist vilja einingu en sáir sundrungu og kyndir undir spennu eins og enginn sé morgundagurinn,“ sagði Eisenkot og bætti við að „þessar brellur virki ekki á mig.“

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅