Fjölskylduharmleikur: Móðir sakaði son sinn um morð á systur hans - Svo tók málið ótrúlega stefnu
Mexíkóski knattspyrnumaðurinn Carlos Salcedo lenti í stormi árið 2024 þegar móðir hans sakaði hann og eiginkonu hans um að hafa skipulagt morðið á systur hans. Skömmu síðar kom í ljós að móðirin var sjálf grunuð um aðild að öðru morði innan fjölskyldunnar.
Málið skók Mexíkó á sínum tíma en Salcedo, sem lék alla leiki Mexíkó á HM 2018, hafði lengi átt í erfiðu sambandi við fjölskyldu sína.
Systir hans, Martha Paola Salcedo, var skotin til bana í Mexíkó þann 29. júní 2024. Hún var 29 ára gömul og hafði farið með fjögurra ára syni sínum á sirkussýningu þegar ráðist var á hana fyrir utan sýningarstaðinn.
Samkvæmt rannsókn lögreglu reyndu tveir menn á mótorhjóli að ræna hana. Hún var skotin sex sinnum og lést síðar á sjúkrahúsi.
Mennirnir tveir voru handteknir skömmu síðar en móðir Paolu, María Isabel Hernandez, var sannfærð um að meira lægi að baki.
Hún sakaði son sinn, Carlos, og eiginkonu hans, Andrea Navarro, opinberlega um að hafa staðið á bak við morðið.
„Raunverulega ástæðan fyrir því að Carlos Salcedo vill yfirgefa landið er sú að hann og eiginkona hans, Andrea Navarro, skipulögðu morðið á Paolu,“ skrifaði móðirin á samfélagsmiðlum.
Ásakanirnar vöktu gríðarlega athygli í Mexíkó, ekki síst vegna þess að Salcedo hafði óskað eftir því að yfirgefa Cruz Azul skömmu eftir dauða systur sinnar.
Knattspyrnumaðurinn var kallaður til skýrslutöku hjá lögreglu en mætti þar sem vitni. Ekki lágu fyrir gögn sem staðfestu ásakanir móður hans og lögreglan taldi að ránið væri líklegasta skýringin á morðinu.
Samband Salcedo við foreldra sína og systur hafði verið afar stormasamt árum saman. Deilurnar snerust meðal annars um fasteignir, peninga og eiginkonu hans.
Paola hafði áður komið fram í sjónvarpsviðtali þar sem hún lýsti því hvernig bróðir hennar hefði skráð hús á hennar nafn og tvo bíla á nafn móður þeirra.
Þegar hann óskaði eftir að fá eignirnar aftur hafi foreldrar þeirra hins vegar lagst gegn því.
Paola sagðist einnig hafa varað bróður sinn við meintu framhjáhaldi eiginkonu hans, sem hefði orðið til þess að hann fjarlægðist fjölskylduna enn frekar.
Salcedo hafði sjálfur sakað móður sína og systur um að reyna að eyðileggja feril hans.
„Almennileg móðir býr ekki til sögur og opinberar þær í þeim tilgangi að skaða son sinn,“ sagði hann um deilurnar.
Málið tók svo enn ótrúlegri stefnu þegar saksóknarar í mexíkóska ríkinu Jalisco staðfestu að móðir Salcedo hefði verið eftirlýst vegna annars morðmáls.
Hún og Paola, systirin sem hafði verið myrt, voru grunaðar um að hafa átt þátt í morði á Jose Felix, ættingja fjölskyldunnar, árið 2023.
Ásakanirnar tengdust deilum um peninga og fasteignir en handtökuskipun hafði verið gefin út á hendur konunum tveimur í janúar 2024, nokkrum mánuðum áður en Paola var myrt.
María Isabel hafnaði ásökununum og hélt því fram að verið væri að leggja á ráðin gegn henni vegna áhrifa sonar hennar.
Hún hélt jafnframt áfram að krefjast þess að morðið á dóttur hennar yrði rannsakað til hlítar.
„Ég treysti því að saksóknarar fari að lögum. Eins og ég hef sagt frá upphafi vil ég réttlæti fyrir dóttur mína, Paolu Salcedo.“
Carlos Salcedo yfirgaf Cruz Azul í kjölfar atburðanna og gekk til liðs við Juárez. Fjölskylduharmleikurinn hafði þá orðið að einu umtalaðasta hneykslismáli mexíkóskrar knattspyrnu.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗