„Segjum bara já og finnum svo út úr því“
Ingi Þórarinn Friðriksson, forstöðumaður ytri áfangastaða hjá Bláa Lóninu, segir gott samstarfsfólk lykilinn að árangrinum. Sjálfur gengur hann í þau störf sem þarf að sinna. Ljósmynd/Cindy Rún
Ingi Þórarinn Friðriksson er forstöðumaður ytri áfangastaða hjá Bláa Lóninu. Hann hefur m.a. komið að uppbyggingu veitingastaðarins Moss, unnið með mörgum fremstu matreiðslumönnum landsins og færir nú metnaðarfulla matargerð upp á hálendið. Hann segir fólkið í kringum sig lykilinn að árangrinum og leggur áherslu á að allir gangi í þau störf sem þarf að sinna.
„Þetta má vera erfitt en það þarf að vera gaman samt,“ segir Ingi þegar við hittumst í Kerlingarfjöllum, þar sem undirbúningur stendur yfir fyrir matarviðburð með Þráni Frey Vigfússyni og ÓX.
Vinátta þeirra nær aftur til námsáranna. Þráinn lærði á Hótel Sögu en Ingi í Perlunni. Þótt rígur hafi verið á milli staðanna náðu ungu kokkarnir strax saman.
„Við smullum saman og höfum alltaf verið mjög miklir vinir síðan.“
Highland Base í Kerlingarfjöllum hefur hlotið Michelin-lykil, viðurkenningu sem veitt er fyrir framúrskarandi hótelupplifun. Ljósmynd/Cindy Rún
Eldaði fyrir karlana í sveitinni
Ingi er fæddur og uppalinn á Ísafirði en ræturnar liggja líka í Ísafjarðardjúpi. Í Hörgshlíð í Mjóafirði var amma hans alin upp og þar dvaldi hann mikið hjá Finnboga bróður hennar.
„Ég var alltaf í sveit hjá honum. Svo ólust börnin mín upp við það að við fjölskyldan fórum í sauðburð á hverju vori. Ég fer enn tvisvar, þrisvar á ári vestur til að ná í næringu í sálina.“
Í sveitinni fékk hann snemma hlutverk við eldavélina. Finnbogi var einbúi og Ingi og frændi hans dvöldu þar saman.
„Ég var yngstur og fékk eiginlega alltaf það hlutverk að elda fyrir okkur þrjá.“
Um sextán ára aldur ákvað hann að læra matreiðslu. Hann fór í grunndeild matvæla en erfitt reyndist að fá námssamning. Þá tók við vinna í eldhúsi sjúkrahússins á Ísafirði, þar sem Birgir Jónsson varð honum mikilvægur bakhjarl.
„Upphaflega planið var að læra á hótelinu á Ísafirði. Birgir sagði að ég ætti bara að gleyma þeirri hugmynd. Ég ætti að fara suður og læra annaðhvort á Hótel Sögu, í Perlunni eða á Hótel Holti.“
Saknaði vinanna heima
Samningurinn fékkst í Perlunni en flutningurinn suður var ungum Vestfirðingi erfiður.
„Fyrstu sex mánuðina ætlaði ég að hætta eftir hverja vakt. Þetta var erfitt og ég saknaði vinanna heima. Birgir talaði mig alltaf inn á að taka einhverjar vaktir í viðbót, sem ég er þakklátur fyrir í dag.“
Sturla Birgisson, sem réð hann til námsins, reyndist honum líka vel. Með honum fékk Ingi að kynnast veisluhaldi á Bessastöðum.
„Ég var búinn að læra í fjóra, fimm mánuði þegar Stulli spurði hvort ég gæti komið aukalega á laugardegi og tekið þátt í veislu á Bessastöðum. Ég var ekki lengi að segja já. Fyrir ungan sveitastrák að vestan var þetta gríðarleg upplifun.“
Hann lauk sveinsprófi árið 2004. Við tóku meðal annars störf á Sel Hótel Mývatni, Hótel Holti, í Noregi og aftur í Perlunni, áður en hann fór til Orkuveitunnar.
„Þráinn og Aggi eru báðir frábærir kokkar“
Árið 2010 lá leiðin í Bláa Lónið. Þar var Viktor Örn Andrésson, vinur hans, þegar kominn til starfa.
„Ef ég á að segja alveg eins og er leist mér ekkert á það fyrst. En Viktor lét mig eiginlega ekki í friði fyrr en ég samþykkti að fara þangað.“
Ingi hóf störf sem aðstoðaryfirkokkur á Lava og tók síðar þátt í undirbúningi Retreat og Moss. Þar hófst náið samstarf hans og Agga Sverrissonar.
„Við lærðum rosalega mikið af því að fá Agga upp í lón. Það opnaði svolítið augu manns fyrir hlutunum.“
Hann segir ólíkan bakgrunn matreiðslumanna styrk fyrir fagið.
„Þráinn og Aggi eru báðir frábærir kokkar en með rosalega ólíkan stíl. Það er líka fegurðin við að vera með svona mikið af hæfileikafólki í bransanum. Það væri ekki gaman ef þeir væru allir eins.“
Ingi Þórarinn Friðriksson og Þráinn Freyr Vigfússon kynntust á námsárunum og hafa verið nánir vinir síðan. Ljósmynd/Irja Gröndal
Segja já og finna svo lausnina
Kerlingarfjöll eru Inga sérstaklega hugleikin og matarviðburðirnir urðu meðal annars til við leit að leiðum til að lengja ferðatímabilið.
„Ég fór að hugsa hvað væri hægt að gera inn í haustið og á vorin. Ég talaði við Þráin og við erum með þá reglu að maður segir bara já og finnur svo út úr því.“
Viðbrögðin létu ekki á sér standa.
„Það voru strax fyrirspurnir eftir viðburðinn í fyrra um hvort þetta yrði aftur. Ég samdi því við Þráin strax á eftir um að taka þetta ári seinna.“
Nú eru gestirnir orðnir yfir níutíu og kvöldið það stærsta sem þau hafa tekið í Kerlingarfjöllum.
„Þegar ég sagði Þráni að við værum komin yfir níutíu vorum við bara báðir þannig þenkjandi að við fyndum út úr þessu.“
Ingi grípur enn í eldamennskuna og tók til hendinni með Þráni Frey á matarviðburði í Kerlingarfjöllum, þar sem gestir voru yfir níutíu. Ljósmynd/Irja Gröndal
Uppvaskarinn fær jafnt og yfirkokkurinn
Þótt verkefnin hafi stækkað segir Ingi viðhorfið til samstarfsfólksins óbreytt.
„Þetta snýst ekkert endilega um að þú sért yfirmaður fólksins. Þið eruð alltaf saman að leysa verkefni.“
Hann leggur áherslu á að framlag allra sé metið.
„Ef við ætlum að skipta þjórfésjóði fær uppvaskarinn jafn mikið og yfirkokkurinn. Mér fannst ekki sanngjarnt að ég, sem væri væntanlega á hæstu laununum, ætti að njóta einhvers sérstaks góðs af honum.“
Sama hugsun gildir þegar mikið liggur við.
„Ég er ekkert of góður til að þrífa klósett ef allt er á hliðinni. Það fara bara allir í allt og finna út úr hlutunum. Ég held að versti yfirmaðurinn sé sá sem er að segja þér að hann sé yfirmaður þinn.“
Að leyfa sér að njóta
Rekstur á hálendinu býður stöðugt upp á óvænt verkefni.
„Ef það getur gerst þá gerist það í Kerlingarfjöllum. Bílar bila, vegurinn fer í sundur eða það flæðir einhvers staðar. En allir eru tilbúnir í vitleysuna sem fylgir því að reka stað á hálendinu.“
Hann vill sjá fleiri Íslendinga upplifa svæðið og ráðleggur gestum að ætla sér nægan tíma.
„Ég mæli með tveimur nóttum og að vera ekki með of mikið skipulagt. Fara í böðin, slaka á, horfa út um gluggann eða lesa bók. Það er svo friðsælt hérna.“
Sjálfur grípur hann enn í eldamennskuna, meðal annars með Þráni á matarviðburðinum. En þegar talið berst að árangrinum snýr hann aftur að samstarfsfólkinu.
„Það er lykillinn að allri velgengni að vera með frábært fólk í kringum sig. Ég hef verið einstaklega heppinn með samstarfsfólk í gegnum tíðina,“ segir Ingi Þórarinn Friðriksson að lokum.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/22/1692252.jpg)



