Árni Hjörvar og Ása Dýradóttir keyptu útsýniíbúð með leyniherbergi

Árni Hjörvar Árnason og Ása Dýradóttir hafa fest kaup á íbúð við Ægisíðu. Samsett mynd

Árni Hjörvar Árnason markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar og upptökustjóri og Ása Dýradóttir bassaleikari í hljómsveitinni Mammút hafa fest kaup á einstakri íbúð við Ægisíðu í Reykjavík. Þau greiddu 145.000.000 kr. fyrir íbúðina. 

Um er að ræða 162 fm íbúð sem er í húsi sem reist var 1956. Húsið er eitt af þessum fallegu húsum sem standa við Ægisíðuna. 

Þegar gengið er inn í íbúðina tekur við ríkmannlegur stigi upp í íbúðina. Stórt hol er við anddyri íbúðarinnar sem er vel skipulögð. Eldhúsið er upprunalegt og er í sérherbergi eins og tíðkaðist á þeim tíma. 

Stórar samliggjandi stofur prýða íbúðina og er útsýni út á sjó úr stofunum. Í íbúðinni er hringstigi upp í leyniherbergi, svokallað háaloftsherbergi sem getur nýst í alls konar sniðugt. 

Smartland óskar Árna Hjörvari og Ásu til hamingju með íbúðina! 

Íbúðin er á efstu hæð hússins og er á tveimur hæðum. Ljósmynd/fasteignavefur mbl.is

Hátt er til lofts í íbúðinni og á gólfum er fallegt fiskibeinaparket. Ljósmynd/fasteignavefur mbl.is

内容来自 Mbl.is - Smartland - Heimili og hönnun,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅