„Svo endar fólk kannski bara á því að fara á Læknavaktina“

Oddur Steinarsson, framkvæmdastjóri heilsugæslunnar Kirkjusandi og varaformaður Læknafélags Íslands.

Oddur Steinarsson, framkvæmdastjóri heilsugæslunnar Kirkjusandi og varaformaður Læknafélags Íslands. mbl.is/Sigurður Bogi

Oddur Steinarsson, framkvæmdastjóri Heilsugæslunnar Kirkjusandi og varaformaður Læknafélags Íslands, segir að rýna þurfi betur hvernig fjármunum og mannauði sé ráðstafað í heilbrigðiskerfinu til að koma í veg fyrir erfiðleika sem fólk upplifir gjarnan þegar kemur að því að panta tíma hjá heimilislæknum.

„Það þarf að skoða hvert þú ert að setja fjármuni. Það eru takmarkaðir fjármunir í heilbrigðiskerfinu og eins með starfsfólk, hvert þú ætlar að setja það,“ segir hann.

Hann segir tugi hjúkrunarfræðinga sinna netspjalli og símsvörun Upplýsingamiðstöðvar heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Þeir séu gjarnan að svara mörgum skilaboðum og símtölum vegna sama erindis.

„Er þetta góð nýting á starfskröftum allra þessara hjúkrunarfræðinga? Væri ekki nær að efla þjónustuna á gólfinu í heilbrigðisþjónustunni?“ spyr Oddur.

mbl.is fjallaði í gær um tilfelli þar sem móðir ætlaði að panta tíma fyrir son sinn hjá heilsugæslulækni en það reyndist mikil hringavitleysa. Eftir hálftíma bið í netspjalli, árangurslausa leit í tímabókunarkerfi Heilsuveru og símtal við heilsugæsluna var hún komin aftur á byrjunarreit án þess að hafa bókað tíma.

Þær einkareknu í forystu

Oddur nefnir í þessu samhengi Upplýsingamiðstöð HH, sem samanstendur af netspjalli, upplýsingavef og símanúmerinu 1700. Hjá opinberu heilsugæslustöðvunum sé tilgangurinn bæði að bóka tíma og veita ráðgjöf. Í tilviki móður drengsins hafi hins vegar farið ansi langur tími í að bóka tíma hjá lækni.

„Á höfuðborgarsvæðinu eru 15 opinberar stöðvar og fjórar sem eru í raun og veru einkareknar. Þær eru nú samt á verktakasamningi við ríkið og þær eru ekki inni í þessu bókunarferli,“ segir Oddur.

Hann segir einkareknu heilsugæslurnar almennt hafa ákveðið forskot í þessum efnum, þar á meðal Heilsugæsluna Kirkjusandi þar sem hann starfar.

„Þar getur fólk bókað beint hjá okkur og sínum læknum. Þú getur bókað almennt hjá þeim á netinu eða hringt og bókað tíma.“

Bókunarvandann má rekja til mönnunarvanda

Spurður hvaðan umræddur bókunarvandi spretti segir hann að í grunninn sé um mönnunarvanda að ræða.

„Á Íslandi eru annars vegar til tölur um hversu margir heimilislæknar eru skráðir í landinu og hins vegar eru aðrar tölur sem voru handtalningar sem kollegi minn gerði í vor á því hversu margir eru starfandi. Samkvæmt þeim voru innan við 200 starfandi í landinu. Þannig að ef við berum okkur saman við Noreg þá veit ég að hver læknir þar var með 991 skjólstæðing skráðan sumarið 2025.“

Þannig sé mönnun heimilislækna á Íslandi helmingi lakari en í Noregi, sem við berum okkur gjarnan saman við. Það leiði til þess að fólk hafi ekki beint aðgengi að tímabókunum. Opinbera heilsugæslan þurfi þó að svara fyrir þann mikla vanda sem fylgi tímabókunum.

Samkvæmt tölum sem Þórður Ólafsson, yfirlæknir Læknavaktarinnar, kynnti á félagsfundi Félags íslenskra heimilislækna (FÍH) í maí er landsmeðaltalið um 2.200 manns á hvern heimilislækni. Á opinberu heilsugæslunum sé að meðaltali einn læknir á hverja 2.700 manns.

„Við erum með einn sérfræðing á tæplega 1.600 og við erum best mönnuð,“ segir Oddur og vísar þar til sinnar starfsstöðvar, sem er einkarekin. 

Samskiptum fjölgað til muna

Spurður hvort ekki sé hægt að leysa flækjuna sem skapast hefur í kerfinu segir hann áhugavert að skoða ársskýrslu Upplýsingamiðstöðvarinnar. Þar megi sjá að samskiptum við miðstöðina hafi fjölgað til muna.

„En ef þú þarft að hafa samband fimm sinnum til þess að fá einn tíma þá er ekki furða að samskiptin aukist. Gæði og fjöldi eru ekki það sama, en hið opinbera horfir ansi oft á fjölda samskipta, símtala, skilaboða og annað slíkt. En það eru ekki alltaf gæði fólgin í því.“

Aukin samskipti endurspegli þannig ekki endilega aukna þjónustu heldur geti þau þvert á móti verið til marks um aukna flækju í kerfinu.

„Svo endar fólk kannski bara á því að fara á Læknavaktina að kvöldi til, sem á í raun og veru að vera neyðarþjónusta,“ segir Oddur.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅