Sextán ára að slá í gegn: Geggjuð tilfinning

Berglind Katla með boltann í kvöld.

Berglind Katla með boltann í kvöld. mbl.is/Anton Brink

„Ég er bara mjög ánægð og stolt af liðinu,“ sagði Berglind Katla Hlynsdóttir, 16 ára landsliðskona í körfubolta, í samtali við mbl.is eftir sigur Íslands á Sviss, 100:82, í Ólafssal á Ásvöllum í dag.

Berglind skoraði 23 stig og var næststigahæst í íslenska liðinu. Hún hefur verið á meðal bestu leikmanna Íslands í fyrstu tveimur landsleikjum sínum, en hún lék einnig vel í útisigrinum á Írlandi á miðvikudag.

„Við undirbjuggum okkur vel fyrir leikinn og stóðum okkur vel í síðasta leik. Þá getur maður ekki annað en komið með sjálfstraust inn í leikinn,“ sagði Berglind.

Ísland byrjaði af miklum krafti og komst í 14:1 eftir aðeins fjórar mínútur. Hver var lykillinn að byrjuninni?

„Bara að mæta með orku. Ég hugsaði bara að staðan væri 0:0 og liðið sem væri með orku myndi vinna leikinn.“

Eftir frumraunina á útivelli fékk Berglind að upplifa sinn fyrsta heimaleik með landsliðinu.

„Það var geggjað. Síðast var öll stemningin eiginlega með Írunum. Að spila á heimavelli með alla Íslendingana í stúkunni er bara geggjuð tilfinning.“

Varstu stressuð fyrir leikinn?

„Já, ég var svolítið stressuð. En eins og ég sagði í síðasta viðtali, þá svitnar maður einhvern veginn stressið af sér um leið og maður byrjar að svitna og hættir að pæla í öllu í kringum sig.

Ég reyni að vera ekki að pæla í hverjir eru í stúkunni eða hverjir eru að horfa. Bara að gera það sem ég get gert best og vonandi gengur liðinu vel og mér líka.“

Ísland hefur unnið báða leiki sína í forkeppni undankeppni EM 2029 og tekur á móti Aserbaídsjan í Ólafssal á þriðjudaginn. Berglind er ánægð með fyrstu skrefin í landsliðinu og hlakkar til að spila aftur á heimavelli.

„Ég er bara mjög ánægð. Stolt af liðinu og nú þurfum við að vinna einn sigur í viðbót. Ég er  meira en spennt.“

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅