Hátíðarhöld juku loftmengun til muna
Loftmengun í hlutum Nýju-Delí, höfuðborgar Indlands, mældist meira en 58 sinnum yfir ráðlögðum sólarhringsviðmiðum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO).
Mengunin jókst í kjölfar flugeldaskota í tilefni af Diwali, árlegri ljósahátíð hindúa.
Milljónir manna fagna hátíðinni með ljósum og flugeldum. Í Nýju-Delí, sem er ein mengaðasta höfuðborg heims, bæta flugeldaskotin enn við mengunarmóðuna sem liggur yfir borginni yfir vetrarmánuðina.
Útblástur frá ökutækjum og iðnaði, ásamt bruna á ökrum, á einnig þátt í loftmenguninni.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗