Myndasaga um þunglyndi byrjunin

Sofia Subbotina og Aleksandra Júríevna Skotjílenkó, Sasha, eru staddar á Íslandi og verða við uppákomu Amnesty International í Hörpu á morgun þar sem Díana Burkot úr hljómsveitinni Pussy Riot verður með gjörning. Sasha fékk sjö ára dóm í Rússlandi fyrir að dreifa „lygum“ um rússneska herinn og sagði Morgunblaðinu og mbl.is frá rússnesku fangelsi og Rússlandi Pútíns. mbl.is/Eyþór

„Síðustu árin mín í Rússlandi var ég neðanjarðartónlistarmaður og neðanjarðarlistamaður. Fjölskylda mín var sárafátæk, við bjuggum í félagslegri íbúð með um það bil tíu öðrum fjölskyldum,“ segir Aleksandra Júríevna Skotjílenkó í samtali við Morgunblaðið, í stuttu máli einfaldlega kölluð Sasha sem er líka listamannsnafn hennar í Rússlandi.

Við köllum hana Söshu í þessu viðtali, spörum plássið þegar voldug rússnesk nöfn eru annars vegar. Sasha er fædd og hefur alið sinn aldur í Sankti Pétursborg, fæddist raunar haustið 1990 og náði því að búa fyrstu mánuði ævi sinnar í hinni fornfrægu Leníngrad eins og borgin hét árabilið 1924 til 1991.

En Sasha býr ekki lengur í Leníngrad. Hún er í útlegð í Berlín í Þýskalandi með löndu sinni, umboðsmanni og eiginkonu Sofiu Subbotinu. Sasha var handtekin vorið 2022 fyrir að dreifa áróðri gegn innrás Vladimírs Pútíns forseta í Úkraínu, dæmd til sjö ára fangelsisvistar með stoð í rússnesku falsfréttalögunum, en slapp með tvö og hálft ár í fangelsi sem var ekkert sérstaklega huggulegt.

Í íbúð við Þingholtsstræti

Í þessu viðtali eru Sasha og Sofia raunar staddar í íbúð við Þingholtsstræti í Reykjavík, langa vegu frá fangaklefum Pútíns. Mannréttindasamtökin Amnesty International lýstu Söshu samviskufanga á sínum tíma og gott fólk barðist með klóm og kjafti fyrir að fá þennan þekkta listamann í Sankti Pétursborg leystan úr haldi.

Það tókst 1. ágúst 2024 þegar Sasha, stjórnarandstæðingurinn og blaðamaðurinn Vladimir Kara-Murza, stjórnarandstæðingurinn Iilya Yasjín, bandaríski blaðamaðurinn Evan Gerskovitsj og fleiri voru látin laus í fangaskiptum við vestræn ríki þar sem þyngsta skiptimyntin kom frá Berlín, rússneski FSB-leyniþjónustumaðurinn og leigumorðinginn Vadim Krasikov sem Þjóðverjar handtóku fyrir víg georgíska Téténans Selimkhans Khangosviljís í Berlín árið 2019.

Sasha er nú hingað komin á vegum Íslandsdeildar Amnesty International í tengslum við 25 ára afmæli herferðarinnar Þitt nafn bjargar lífi, en mál hennar var hluti af þeirri herferð árið 2022. Afmælishátíðin Sláum taktinn – listræn samstaða fer fram í Hörpuhorni Hörpu á morgun, sunnudag, klukkan 17, og flytur Pussy Riot-liðsmaðurinn Diana Burkot þar listrænan gjörning auk þess sem Agnès Callamard, aðalframkvæmdastjóri Amnesty International, verður heiðursgestur.

„Því miður hófu þau barneignir strax“

Fjölbreyttur hópur listafólks kemur fram og stóru, gulu og sláandi hjarta verður varpað á framhlið Hörpu, en hjartað er táknmynd herferðarinnar í ár og endurspeglar þann kraft sem býr í samstöðu fólks. Í ár beinist herferðin að málum átta einstaklinga sem sæta alvarlegum mannréttindabrotum víða um heim. Íslendingar geta lagt sitt af mörkum með því að skrifa undir áköll til stjórnvalda og sýna þolendum mannréttindabrota samstöðu.

„Foreldrar mínir eru upprunalega frá Sakalín [stærstu eyju Rússlands, undan austurströnd Síberíu], þau fluttu ung til Sankti Pétursborgar [þá Leníngrad] til þess að læra og verða listamenn, en því miður hófu þau barneignir strax og fengu ekki tækifæri til að láta draumana rætast, þau urðu að ala önn fyrir börnunum, draumar þeirra koðnuðu niður,“ segir Sasha með angurværum raddblæ og augljóst að hugurinn leitar til baka til æskuáranna. Hún er vel mælt á ensku, kímnigáfan á sínum stað og þessi viðmælandi er ekki að velta sér upp úr eigin örlögum eftir fangelsisvist fyrir hlægilegar sakir, hugur hennar er hjá nágrönnunum í Úkraínu sem hafa mátt þola ofríki rússneskra stjórnvalda.

Sasha sat í gæsluvarðhaldsfangelsinu SIZO-5 í borg heilags Péturs sem betur er í daglegu tali þekkt sem „Arsenalka“ þar sem það stendur við götuna Arsenalnaya, skammt frá hinu sögufræga og illræmda Kresty-fangelsi við ána Nevu.

Segðu mér frá dvölinni í fangelsinu.

„Í byrjun var hún hryllilega þungbær. Ég er með glútenóþol og þarf að vera á sérstöku mataræði sem er flókið, en ekkert stórmál þegar ég er frjáls manneskja. Fangelsið bauð ekki upp á þetta mataræði. Ég fékk mat sem líkami minn gat ekki melt. Hefði ég setið þarna árum saman hefði það eyðilagt mig í maganum,“ svarar Sasha sem á sínum tíma hóf nám í kvikmyndaleikstjórn, en tónlistin seiddi hana til sín.

Teiknimyndasaga um þunglyndi

„Það var ekki vegna peninga eða til að verða fræg, ég bara varð að búa til tónlist,“ segir rússneska andófskonan dreymin, kona sem bauð Pútín birginn og var látin laus í skiptum fyrir eitt alræmdasta illmenni rússneska forsetans. „Ég var líka mikið fyrir að teikna og árið 2014 sendi ég frá mér litla teiknimyndasögu um þunglyndi sem sló í gegn í Sankti Pétursborg,“ bætir hún við.

Þú ert á kafi í listaheiminum og neðanjarðartónlistarsenunni í borginni, svo ræðst Rússland á Úkraínu. Hvað gerðist?

„Ég á vini af mörgum þjóðernum, ég á marga vini í Úkraínu og teiknimyndasagan mín kom líka út á úkraínsku,“ svarar listakonan. „Árið 2019 fór ég til Kænugarðs. Mig fýsti að sjá þessa borg og hvernig þarna væri umhorfs. Rússneskur áróður var á þá leið að allir Úkraínumenn hötuðu Rússa. Ég upplifði ekki það hatur. Ég vann sem barnaráðgjafi í barnabúðum í Úkraínu og allt í einu heyrum við [í febrúar] árið 2022 að Rússar séu að varpa sprengjum á Kænugarð,“ rifjar hún upp.

„Ég þekkti börn þarna, ég gat ekki bara þagað og látið eins og ekkert væri. Þetta fólk hafði ekkert gert á hlut Rússa og allt í einu var það að hlaupa í skjól undan sprengjum og drónum,“ segir Sasha og hækkar ekki röddina um eina áttund. Jafnaðargeð manneskju sem hefur horfst í augu við verstu hliðar Rússlands Pútíns.

Verðmiðaverkefnið dýrkeypta

Og Sasha þagði ekki. „Ég tók þátt í hreyfingu sem laumaði skilaboðum á verðmiða á vörum í búðum, við skrifuðum skilaboð á borð við að núna leituðu 400 manns skjóls undan sprengjuregni í listaskóla í Maríupol [í Úkraínu]. Svo var ég handtekin. Kona í einni búðanna tilkynnti skilaboðin til lögreglu og lögreglan fann mig strax með efni úr öryggismyndavélum. Í Rússlandi eru öryggismyndavélar alls staðar, stjórnvöld fylgjast með öllum,“ segir rússneski gesturinn.

Svo fór að hún var nörruð heim til vinar síns. Lögreglan var þá komin þangað og neyddi hann til að hringja í Söshu og biðja hana að koma. Þar var hún handtekin og í kjölfarið dæmd í sjö ára fangelsi fyrir skilaboð um Úkraínustríðið á verðmiðum í verslunum.

Hvað ætlarðu að segja í ávarpi þínu í Hörpu?

„Það veit ég ekki,“ segir Aleksandra Júríevna Skotjílenkó og hlær af hjartans lyst. Við beinum talinu að öðru, heimsókninni til vinarins þar sem hún var handtekin vorið 2022.

Þar beið rússneska lögreglan

„Ég hélt fyrst að lögreglan hefði farið til hans vegna tónleika sem ég hélt þar sem friður var þemað, hann tók þátt í þeim. Ég hélt að til stæði að handtaka vini mína fyrir eitthvað sem ég gerði og fór heim til hans þar sem lögreglan beið eftir mér. Hún sagði mér þá að þetta snerist um verðmiðana og fyrir það var ég dæmd. En ég átti góða vini sem börðust eins og ljón fyrir mig,“ segir Sasha auk þess sem Amnesty International tók mál hennar að sér.

„Sem betur fer var mér svo sleppt í þessum fangaskiptum,“ segir viðmælandinn og lítur til baka til tíma þegar líf hennar tók stakkaskiptum.

En hvar var glæpurinn samkvæmt ákæru?

„Hann var að dreifa röngum upplýsingum um rússneska herinn. Ég er ekki sammála því að þessar upplýsingar hafi verið rangar. Ég kvaðst saklaus af glæpnum, hefði ég ekki gert það hefði ég í raun játað að ég væri að ljúga að fólki, en ég var ekki að ljúga,“ segir Sasha af réttarhöldunum.

Í fyrstu deildi hún klefa með fjölda kvenna, en komst síðar í klefa þar sem þær sátu bara tvær saman, hún og önnur sem afplánaði í SIZO-5. „Ég fékk líka sálfræðiaðstoð og lækni sem sinnti mér. En það var bara fyrir baráttu þeirra sem börðust fyrir mig,“ segir hún.

Skiptin fyrir Krasikov

Þegar Söshu var sleppt úr haldi hélt hún bara að verið væri að færa hana milli fangelsa. „Farið var með okkur um borð í rútu og þar voru rússneskir sérsveitarmenn sem litu á okkur eins og hryðjuverkamenn. Við fórum svo um borð í flugvél og þar voru Kara-Murza, Yarsjín og hinir,“ segir hún frá.

Flogið var með hópinn til Ankara í Tyrklandi þar sem skiptin áttu sér stað.

Var þetta manneskja á móti manneskju sem skipt var á?

„Nei, þetta var mjög flókið. Við héldum að [stjórnarandstöðuleiðtoginn Alexei] Navalní væri hluti af þessum skiptum, við vissum ekki að hann væri látinn,“ svarar Sasha.

Hún komst svo til Berlínar, en þýsk stjórnvöld höfðu boðið hana velkomna, og þar fengu þær Sofia að ganga í hjónaband sem er bannað í Rússlandi. Sasha er einstaklega ánægð með framgöngu stjórnvalda í Þýskalandi.

Máttu ekki gifta sig

„Sjáðu nú til, Sofia [Sasha kallar hana Sonju, rússnesk gælunöfn eru rannsóknarefni út af fyrir sig, hún útskýrir til dæmis fyrir blaðamanni að Sasha sé ein af nokkrum útgáfum gælunafna af nafninu Aleksandra] barðist fyrir mig frá byrjun. Hún missti vinnuna vegna þess að hún var að hjálpa mér. Við höfðum verið par í Rússlandi í tíu ár, en máttum ekki gifta okkur. Núna eigum við okkur líf,“ segir Sasha og brosið er nær heyranlegt í gegnum símann. Sofia svaraði raunar í símann þegar blaðamaður hringdi og spjallaði stuttlega.

Hvað sjá Rússar hjónaböndum samkynhneigðra til foráttu, rökstyðja þeir bannið með biblíunni?

Sasha hugsar sig um. „Þetta er mjög góð spurning. Það er dálítið erfitt að útskýra þetta. Stór hluti af áróðri Pútíns, og það sem aflar honum stuðnings, er samúð með Rússlandi, hann spilar á þá samúð og höfðar til fólks með henni. Margir Rússar eru gamaldags, þeir vilja lifa gamaldags lífi og elska ættjörðina. Margir eru hræddir við samkynhneigt fólk, Rússar segja kynferðislega brandara, þeir bera ekki virðingu fyrir konum og þar ríkir mikið hommahatur,“ segir Sasha blákalt.

Hún segir Rússa óttast breytingar mest af öllu. „Rússar eru rosalega vanaföst þjóð, þeir vilja hafa allt eins og í gamla daga. Allt hefur bara verið svona alltaf og þá á það alltaf að vera svona,“ segir rússneski gesturinn og blaðamaður ákveður að þegja um að hann gisti bara á sömu hótelherbergjunum, drekki sömu kaffitegund allar götur frá 1989 og vilji helst fá ritvélar og faxtæki aftur.

Pútín er KGB-maður

Ég skil þig. En hvað heldurðu að gerist eftir daga Pútíns? Honum er varla ætlað eilíft líf.

„Ég er ekki stjórnmálamaður, ég er mynd- og tónlistamaður, ég get ekki svarað þessu,“ segir Sasha að bragði, en hugsar sig þó um. Ég vildi að Rússar mótmæltu stundum, eins og gerist í Evrópu. En allir eru skíthræddir. Pútín er KGB-maður og þeir sem stjórna Rússlandi koma úr KGB-fjölskyldum, fjölskyldum sem stjórnuðu Sovétríkjunum. Þeir vilja fá völdin sín aftur, það er það sem Pútín vill og hann hefur sagt frá upphafi,“ segir Sasha.

Hún leggur áherslu á ótta rússnesku þjóðarinnar. „Allir eru undir smásjá, myndavélar eru á hverju horni. Þú getur verið handtekin(n) fyrir að senda póst eða millifæra peninga. Ef þú finnur síma á götunni og ferð með hann á lögreglustöð máttu búast við að þér verði kennt um að hafa stolið honum. Finnist eitthvað gegn stjórnvöldum í honum er það á þína ábyrgð,“ segir Sasha af samfélagi sem hún þekkir vel – kannski allt of vel.

„Mér liggur við að segja að rússnesk fangelsi taki fleiri en dauðinn sjálfur. Fólk er pyntað og drepið í fangelsunum þar. Flestar konur í rússneskum fangelsum sitja inni fyrir fíkniefnabrot. Þú getur fengið tíu ára dóm fyrir fimm grömm af kannabisefnum. Rússland er að sökkva í fíkniefnaneyslu, fíkniefnaiðnaðurinn þar er gríðarstór, efnafræðingar þar eru að framleiða fíkniefni,“ segir hún frá.

Of kalt á Íslandi fyrir þær

Aðspurð kveður Sasha þær Sofiu ánægðar í Þýskalandi. „En nú eru öfgahægrimenn að ryðja sér til rúms þar. Ég elska Berlín og í Þýskalandi fengum við Sofia að ganga í hjónaband, lífið þar er allt annað,“ segir Íslandsgesturinn.

Viljið þið ekki bara flytja til Íslands?

„Nei, það er allt of kalt fyrir okkur,“ segir Aleksandra Júríevna Skotjílenkó, Sasha, að lokum og hlær við, á leið í fyrirlestrarhald í Hörpu á morgun, sunnudag, þar sem Díana Burkot úr hinni gallhörðu rússnesku ádeilusveit Pussy Riot verður einnig með listgjörning.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅