Ekkert uppnám að mati ráðherra
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra tekur undir áhyggjur af fjármögnun samgöngusáttmálans. mbl.is/Karítas
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra viðurkennir að fjármögnun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins hafi ekki gengið eftir áætlun og að það sé áhyggjuefni. Hann hafnar því hins vegar að sáttmálinn sé í uppnámi og segir ríkið munu standa við skuldbindingar sínar.
„Við deilum áhyggjum borgarstjóra af fjármögnuninni. Það lá fyrir tillaga sem sveitarstjórarnir höfðu fyrir sitt leyti samþykkt, þó að ríkið hafi sett við hana fyrirvara, og líka hugmyndir um fjármögnun með sölu á Keldnalandinu. Ekkert af þessu hefur gengið almennilega eftir og það er auðvitað áhyggjuefni,“ segir Daði Már í samtali við Morgunblaðið.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗