66° Norður stækka við sig í Kringlunni

Innlent | mbl | 14.11.2026 | 22:45

66° Norður hefur stækkað við sig í Kringlunni. Ljósmynd/Aðsend

66° Norður hefur opnað endurhannaða og stærri verslun á 2. hæð í Kringlunni. Hönnunin sækir innblástur í Kötlujökul og verður verslunin fyrirmynd að endurnýjun fleiri verslana fyrirtækisins.

Samkvæmt tilkynningu hefur verslunin verið stækkuð um tæplega helming og er nú alls 366 fermetrar. Meðal annars hefur verið bætt við sérstöku krakkahorni í versluninni.

Elín Tinna Logadóttir, forstjóri 66° Norður á Íslandi, segir í tilkynningunni að breytingin bjóði viðskiptavinum upp á meira rými í verslun þar sem fólk geti tekið sér tíma, liðið vel og mátað föt í ró og næði.

Meira rými á að gefa viðskiptavinum meira ró og næði við verslun. Ljósmynd/Aðsend

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅