66° Norður stækka við sig í Kringlunni
Innlent | mbl | 14.11.2026 | 22:45
66° Norður hefur opnað endurhannaða og stærri verslun á 2. hæð í Kringlunni. Hönnunin sækir innblástur í Kötlujökul og verður verslunin fyrirmynd að endurnýjun fleiri verslana fyrirtækisins.
Samkvæmt tilkynningu hefur verslunin verið stækkuð um tæplega helming og er nú alls 366 fermetrar. Meðal annars hefur verið bætt við sérstöku krakkahorni í versluninni.
Elín Tinna Logadóttir, forstjóri 66° Norður á Íslandi, segir í tilkynningunni að breytingin bjóði viðskiptavinum upp á meira rými í verslun þar sem fólk geti tekið sér tíma, liðið vel og mátað föt í ró og næði.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
