Atli Steinn eyddi 7,3 milljónum í fimmtugsafmælið

Atli Steinn Guðmundsson.

Atli Steinn Guðmundsson. mbl.is/Óttar Geirsson

Blaðamaðurinn Atli Steinn Guðmundsson gerði sér lítið fyrir og hélt stórglæsilega fimmtugsafmælisveislu í Hörpu árið 2024. Veislan kostaði hvorki meira né minna en 7,3 milljónir króna og hafði Atli Steinn safnað fyrir henni í heilan áratug. Hann ræðir veisluna og ýmislegt fleira í hlaðvarpinu Marta María býður heim. 

„Þegar ég var fertugur þá ákvað ég það að fimmtugsafmælið mitt yrði síðasta afmælið sem ég héldi,“ sagði Atli Steinn.

Hann tók ákvörðun um að leggja 60 þúsund krónur fyrir í hverjum mánuði svo hann gæti haldið draumaveisluna þegar stóri dagurinn rynni upp.

Bauð 1.200 manns

Atli Steinn lét ekki staðar numið við nokkra tugi gesta heldur bauð alls 1.200 manns til veislunnar. Hann gerði þó ráð fyrir að margir kæmust ekki vegna páskanna og reyndist það rétt. Um 500 manns mættu í veisluna, sem haldin var í Hörpu 30. mars 2024.

„Þetta var algjörlega fullkomin afmælisveisla,“ sagði hann og bætti við að allt hefði gengið upp eins og hann hafði vonast til.

Katrín Jakobsdóttir var veislustjóri.

Katrín Jakobsdóttir var veislustjóri. mbl.is/Óttar Geirsson

Katrín Jakobsdóttir var veislustjóri

Það vakti ekki síður athygli að Katrín Jakobsdóttir, þáverandi forsætisráðherra, tók að sér veislustjórnina. Þau Atli Steinn kynntust þegar þau voru saman í íslenskunámi við Háskóla Íslands. Atli Steinn hafði haft samband við Katrínu tveimur árum fyrir veisluna og spurt hvort hún væri laus þennan tiltekna dag.

Hann sagði það hafa verið sérstaklega ánægjulegt að fá hana til að stýra kvöldinu og væri henni afar þakklátur.

Atli Steinn sagði daginn standa upp úr í minningunni. Ekki aðeins hefði veislan heppnast einstaklega vel heldur hefði viðtal hans við leikarann Michael Caine birst í Morgunblaðinu sama dag.

„Þann dag sem ég dey þá mun ég ekki minnast, held ég, annars dags sem var betur heppnaður í lífi mínu,“ sagði Atli Steinn.

Hægt er að hlusta á þáttinn á helstu streymisveitum og á hlaðvarpsvef mbl.is. 

内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅