Ljósmyndarar mættu við skóla dætranna
Enski knattspyrnudómarinn Darren England segir að eftirmálar mistaka hans, sem urðu til þess að mark Luis Díaz fyrir Liverpool gegn Tottenham árið 2023 var ranglega dæmt af, hafi haft áhrif á fjölskyldu hans jafnt sem feril hans.
England var myndbandsdómari þegar Díaz var ranglega dæmdur rangstæður. Þótt endursýningin sýndi að framherjinn hefði verið réttstæður sagði England fyrir mistök „athugun lokið“, svo að markið stóð ekki.
„Þetta var lágpunktur. Lægsti punkturinn, að sjálfsögðu,“ sagði hann við BBC Sport.
Í kjölfarið söfnuðust ljósmyndarar saman fyrir utan skóla dætra hans og fjölskyldumyndir voru teknar af Facebook-síðu eiginkonu hans.
„Það hefur þá áhrif á mann, ekki sem dómara heldur sem manneskju.“
England vann með íþróttasálfræðingi. Nærri þrír mánuðir liðu þar til hann dæmdi aftur leik í ensku úrvalsdeildinni og það tók hálfan sjöunda mánuð þar til hann sneri aftur sem myndbandsdómari.
„Stuðningurinn, ekki aðeins frá vinnuveitendunum heldur enn frekar frá fjölskyldu og vinum, skipti sköpum.“
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗