Carrick grét er hann kvaddi leikmenn
Michael Carrick kvaddi leikmenn Manchester United grátandi á æfingasvæðinu í Carrington í gær eftir að hafa verið rekinn sem knattspyrnustjóri félagsins, samkvæmt The Sun.
„Hann var með tárin í augunum þegar hann kvaddi strákana,“ sagði ónafngreindur heimildarmaður blaðsins. „Hann sagði í raun bara: „Ég er farinn, strákar,“ tók í nokkrar hendur, settist í bílinn og fór.“
Carrick og starfslið hans fá fimm milljónir punda í starfslokagreiðslur. Hann var tíu mánuði í starfi og skilur við United í fallsæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Mauricio Pochettino tekur við starfinu ef Englendingnum.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗