Álit Minjastofnunar verður nú valkvætt
Íbúðarhús við Seljaveg í Reykjavík reist árið 1933. Byggðin í borginni, norðan Hringbrautar, er að stórum hluta frá millistríðsárunum. mbl.is/Sigurður Bogi
„Breytingarnar létta á kerfinu og gera minjaverndina markvissari,“ segir Rúnar Leifsson forstöðumaður Minjastofnunar. Þar er nú starfað samkvæmt nýju umhverfi eftir að sú lagaskylda var afnumin, nú í byrjun nóvember, að álit stofnunarinnar þyrfti vegna breytinga á húsum byggðum á árunum 1924-1940. Eftir sem áður eru hús byggð 1923 eða fyrr aldursfriðuð með lögum og hægt er að friðlýsa sérstaklega yngri hús sem hafa menningarsögulegt eða listrænt gildi.
Þess misskilnings hefur gætt, að sögn Rúnars, að breyttum lögum samkvæmt njóti gömul hús ekki lengur friðunar. Svo er ekki. Aldursfriðun er enn í gildi, en hins vegar er búið að létta þeirri kvöð að leita skuli óbindandi álits Minjastofnunar um breytingar á byggingum byggðum milli 1924 og 1940, umfram önnur og yngri hús. Eigendum bygginganna er hins vegar heimilt að leita faglegs álits Minjastofnunar Íslands, eins og ágætt getur verið, enda þótt umsögnin sé á engan hátt bindandi.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗