Óttast að náminu verði sjálfhætt
Erlendir nemar hvaðanæva úr heiminum rannsaka heimildir íslenskra miðaldahandrita hérlendis. mbl.is/Eyþór
Alþjóðlegt meistaranám í miðaldafræðum við Háskóla Íslands gæti lagst af vegna nýrra skólagjalda fyrir nemendur frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins.
Þetta segir Haraldur Bernharðsson, forseti hugvísindasviðs HÍ og prófessor í íslenskum miðaldafræðum, við Morgunblaðið. 73% nema í náminu koma frá löndum utan EES.
Haraldur telur HÍ þegar hafa séð af góðum nemendum vegna skólagjaldanna. Líkur séu á að alþjóðanámið verði ekki rekstrarhæft ef fram heldur sem horfir.
„Það er dýrt að búa á Íslandi. Framfærslukostnaður er hár og nemendur okkar hafa fundið fyrir því. Það er hlutur sem við ráðum ekki við en ef þessi skólagjöld bætast við þá er þetta bara búið spil.“
Námið mun nú kosta tæplega fimm milljónir króna (4.700.000 kr.) á hvern nema fyrir 120 eininga framhaldsnám. Samþykkt var á Alþingi frumvarp þess efnis að ríkissjóður myndi ekki standa straum af kostnaði nemenda utan EES lengur. Því er háskólum heimilt að innheimta af þeim skólagjöld. Það mun HÍ gera ásamt fleiri háskólum.
Miklum menningarlegum hagsmunum kastað á glæ
Haraldur gagnrýnir lítið sem ekkert upplýsingaflæði frá stjórnvöldum síðan áformin voru kynnt til sögunnar fyrir um ári.
Hækkun skólagjalda fyrir nema utan EES hefur þegar átt sér stað annars staðar á Norðurlöndum. Haraldur segir að í Noregi hafi nemendum utan EES snarfækkað eftir breytinguna þar árið 2023.
„Óhjákvæmilegt virðist að búa sig undir að engir nemendur með ríkisfang utan EES sæki þetta nám í framtíðinni ef þessi háttur verður hafður á. Það yrði mikið reiðarslag og hætt við að námsleiðirnar verði hreinlega ekki rekstrarhæfar,“ segir Haraldur við blaðamann en hann átti þátt í því að koma náminu á fót ásamt Torfa Tulinius prófessor.
„Þar færi tuttugu ára uppbyggingarstarf í súginn og flaggskip háskólanáms í íslenskum miðaldafræðum hyrfi. Þar yrði kastað á glæ miklum menningarlegum hagsmunum þar sem brautskráðir nemendur af þessum námsleiðum halda margir áfram í fræðunum, verða kannski háskólakennarar við erlenda háskóla um allan heim og halda áfram að kenna þar Íslendingasögur og eddukvæði. Um 20 brautskráðir nemendur úr þessu námi gegna nú störfum háskólakennara utan Íslands. Menningarlegur arður af þessu námi er því umtalsverður.“
Þrír fjórðu nemendahópsins
„Ef við missum þrjá fjórðu hluta nemendahópsins þá er námið ekki rekstrarhæft. Nemendurnir verða þá of fáir til að standa undir rekstri námsins miðað við það rekstrarlíkan sem við búum við núna. Þá er hætt við að því verði einfaldlega lokað. Þannig að hljóðið er, eins og gefur að skilja, afar þungt,“ segir Haraldur aðspurður um viðbrögð fræðimanna við skólagjöldunum.
„Þetta þykja mikil ótíðindi og afar óskynsamleg ráðstöfun,“ bætir hann við og segir vert að velta fyrir sér forgangsröðun stjórnvalda.
„Í stað þess að reisa girðingar hefðu stjórnvöld átt að reyna að skjóta styrkari stoðum undir þær greinar sem eru aðalsmerki Háskóla Íslands; greinar sem enginn sinnir betur en Háskóli Íslands og jafnvel enginn annar en Háskóli Íslands,“ segir Haraldur og bætir við: „Það er ekkert nám sem er alveg sambærilegt.“
Miðstöð íslenskra fræða segir Haraldur að sé tvímælalaust á Íslandi þó svo að íslensk fræði séu kennd í fleiri löndum.
„Ef Íslendingar setja ekki fjármuni í að mennta fólk í íslenskum miðaldafræðum, þá gerir það enginn,“ segir hann.
Eins og áður segir átti Haraldur þátt í því að móta námsleiðina sem hóf göngu sína fyrir um 15 árum. Þá hafði hann lokið doktorsnámi við Cornell-háskóla í Bandaríkjunum. Norræna ráðherranefndin veitti þá Nordic Master Programme-styrki til að setja á fót alþjóðlegar meistaranámsleiðir.
„Hugmyndin var að efla samstarf háskóla á Norðurlöndum og laða að hæfileikaríka nemendur,“ segir Haraldur.
„Við fengum slíkan styrk 2010 ásamt Óslóarháskóla, Árósaháskóla, Kaupmannahafnarháskóla og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Markmiðið var að setja á fót alþjóðlegt fjögurra missera meistaranám, Viking and Medieval Norse Studies, fyrir nemendur hvaðanæva úr heiminum. Fyrir var alþjóðlegt þriggja missera meistaranám, Medieval Icelandic Studies. Þessar tvær námsleiðir hafa síðan verið reknar samhliða.“
Húsið við Arngrímsgötu er glæsileg umgjörð utan um íslensk fræði. Árnastofnun og HÍ hafa þar aðsetur. mbl.is/Árni Sæberg
„Sorglega fáir styrkir“
Þegar blaðamaður ræddi við Harald í síðustu viku sagði hann ekkert í hendi um hugsanlegar undanþágur, kvóta eða styrki á móti skólagjöldum þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir HÍ til stjórnvalda.
Frumvarpið var kynnt um mánaðamót nóvember og desember í fyrra og samþykkt í júní í ár.
Eins og segir í fylgju hér verður kvóti til niðurfellingar á skólagjöldum. Haraldur segir að trúlega verði þeir ekki nema um 60 alls sem falli í hlut Háskóla Íslands.
„Þetta eru sorglega fáir styrkir til Háskóla Íslands miðað við þann fjölda nemenda sem hér hefur stundað nám undanfarin ár,“ segir hann.
„Of seint í rassinn gripið“
Haraldur segir mikla óvissu hafa einkennt ferlið fyrir HÍ síðan frumvarpið var kynnt fyrir tæpu ári en umsóknir fyrir næsta skólaár verða opnaðar 10. desember og frestur til að sækja um rennur út 1. febrúar.
Um það bil 25 nemendur að meðaltali hafa fengið inni í umræddu námi á hverju ári. Haraldur segir að gera megi ráð fyrir að um 18 af þeim 25 séu frá löndum utan EES.
„Í einhverjum skilningi má segja að það sé of seint í rassinn gripið að kynna styrki núna. Það er hætt við að margir af bestu nemendum hafi þegar beint sjónum sínum annað. Þeir hafi komist að þeirri niðurstöðu að þeir geti ekki beðið svara og hafi ekki ráð á því að reiða fram fimm milljónir í skólagjöld fyrir þetta nám ofan á háan framfærslukostnað á Íslandi og tekjuleysi á meðan. Það eru mjög fáir í færum til slíkra útgjalda,“ segir Haraldur sem bendir á að HÍ sé í samkeppni um nemendur við aðra háskóla sem bjóði fram styrki til náms og framfærslu.
Umsóknum þegar fækkað
Óttastu þá að hafa misst af efnilegum nemendum nú þegar?
„Já, það er enginn vafi. Það er að verða ár síðan frumvarpið var lagt fram. Þær fréttir vöktu óðara mikla athygli og nemendur sem höfðu augastað á þessu námi fengu margir veður af þessu. Við fengum fjölda fyrirspurna um þetta: Er það rétt að það eigi að innheimta skólagjöld? Hvernig verður því háttað? Hvað verða þau há? Hverjir þurfa að greiða þau?
Háskóli Íslands hefur verið settur í þá vondu stöðu að hafa ekki upplýsingar haldbærar til þess að geta svarað þessum nemendum,“ segir Haraldur.
Haraldur segir samkeppnishæfni Háskólans hafa hrunið niður vegna breytinganna og óvissunnar.
„Þetta er algjört skipbrot hvað það varðar. Bestu nemendurnir skipuleggja sig langt fram í tímann. Þeir eru löngu farnir að huga að framhaldsnámi. Það að fara í meistaranám til Íslands eða til útlanda er aldrei skyndiákvörðun heldur þarf alltaf að eiga sér einhvern aðdraganda.
Þess vegna er óskaplega slæmt hvað þetta ferli hefur allt saman tekið langan tíma og hversu langan tíma hefur tekið að fá upplýsingar frá stjórnvöldum um það hvernig tilhögun þessa verður,“ segir hann.
„Við sáum að umsóknum fækkaði í fyrra. Á síðasta umsóknarfresti voru þær óvenjufáar. Það er alveg ábyggilegt að þessi umræða hefur átt einhvern þátt í því.
Mikil vinna er fram undan ef reyna á að vinna upp og bæta fyrir þann orðsporshnekki sem háskólinn hefur orðið fyrir. Tafirnar og óvissan sem við höfum búið við mánuðum saman hafa valdið miklu tjóni.“
Fjármunum vel varið
„Auðvitað kostar fjármuni að halda úti þessu námi. En hægt er að færa fyrir því gild rök að þeim fjármunum sé vel varið í að rækta þennan menningararf og miðla honum út um allan heim,“ segir Haraldur.
„Þetta nám laðar að sér hæfileikaríka nemendur hvaðanæva úr heiminum. Þeir hafa þá stundað einhvern anga af miðaldafræðum í sínu heimalandi,“ segir Haraldur.
Flestir sem koma frá löndum utan EES eru frá Bretlandi, Bandaríkjunum og Kanada. Nemendurnir koma þó víða að eða frá alls fjörutíu löndum. Nemendur frá löndum innan EES telja alls 27% fjöldans. Í því mengi eru flestir frá Ítalíu, Frakklandi og Þýskalandi.
„Þeir hafa ólíkan menningarlegan og akademískan bakgrunn. Þetta eru sagnfræðingar, bókmenntafræðingar, málfræðingar, fornleifafræðingar, heimspekingar og þjóðfræðingar, svo eitthvað sé nefnt,“ segir Haraldur.
„Þeir hafa í sínum heimaháskólum fengið eitthvert veður af þessum norræna heimi. Norrænu heimildirnar eru náttúrlega óvenju ríkulegar og forvitnilegt rannsóknarefni. Hugur þeirra stendur þá til þess að fá tækifæri til þess að sökkva sér ofan í þennan norræna heim og kynna sér þessar heimildir um norrænar miðaldir og vinna að rannsóknum á því,“ segir Haraldur.
„Fæstir þessara nemenda hafa það að markmiði, ef nokkrir, að setjast að á Íslandi heldur að ná sér í meistaragráðu, sökkva sér í þessi fræði en halda síðan áfram sínu námi. Þannig að langflestir hverfa síðan aftur til síns heimalands, margir í frekara nám.
Mörg fara að vinna í safnafræði til dæmis. Þau bæta kannski við sig gráðu og fara að vinna í söfnum og menningarmiðlun víða um heim.
Mjög stór hluti, um 40%, fer í doktorsnám. Þau taka þá með sér þessa vitneskju og halda áfram að vinna með norræn fræði, fá síðan störf og oft akademísk störf við háskóla og rannsóknarstofnanir.
Þau halda þá áfram að miðla þessum miðaldabókmenntum og íslenskri menningu, norrænum miðaldabókmenntum, og kenna jafnvel Íslendingasögur eða eddukvæði,“ segir Haraldur.
„Við höfum þegar fengið nemendur nemenda okkar í námið. Þegar upp er staðið er gríðarleg menningarleg arðsemi af þessu námi. Hún birtist í því að nemendur í því fara að miðla þessum fróðleik, miðla íslenskri menningu um allan heim.“
Fara þessir nemendur sumir í doktorsnám við Háskóla Íslands?
„Já, þeim fjölgar alltaf sem gera það. Þeir eru fleiri sem fara í doktorsnám í öðrum háskólum úti um allan heim en dágóður hópur lýkur doktorsnámi við Háskóla Íslands. Í lok október var ung kona að ljúka doktorsprófi héðan. Hún lauk áður meistaraprófi í umræddu námi og hélt síðan áfram og var að verja bráðmerkilega doktorsritgerð í sagnfræði um gerð íslenskra miðaldahandrita, sjálfra handritanna, það er að segja, skinnið og fleira,“ segir Haraldur og vísar þar til lokaverkefnis Leu Deboru Pokorny frá Austurríki.
Spurður að því hvort alþjóðlega námið í miðaldafræðum geti haft jákvæð efnahagsleg áhrif í för með sér segir Haraldur:
„Já, klárlega. Snjallir hagfræðingar geta örugglega sett einhverjar slíkar mælistikur á það, á menningarlega arðsemi þessa náms. Ég leyfi mér að halda því fram að þeim fjármunum sem íslenska ríkið setur í að mennta fólk í þessum fræðum sé vel varið og þeir ávaxtist vel til langrar framtíðar.“
Handritin komu heim
Haraldur segir Eddu, nýbyggt hús íslenskra fræða, glæsilega umgjörð utan um varðveislu handritanna en líka sýningar á þeim auk rannsókna og kennslu. Hann bendir á að safn Árna Magnússonar hafi verið skráð á menningarminjaskrá Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, árið 2009.
„Sú skráning undirstrikar þær skyldur sem fylgja þessum menningararfi. Það er ekki nóg að loka handritin bara í tryggum geymslum til framtíðar. Það fylgir líka sú skylda að rannsaka þau og miðla þekkingu á þessum menningarverðmætum. Íslendingum ber skylda til þess að sýna handritin, rannsaka þau og kenna heiminum þau fræði sem tengjast þeim. Þetta eru gríðarlega merkilegar heimildir og engin tilviljun að þetta sé rannsóknarefni úti um allan heim.“
Áður benti Haraldur á að íslensk fræði væru eitt af aðalsmerkjum Háskóla Íslands. Sögu námsgreinarinnar má rekja allt til stofnunar hans.
„Á 20. öld var Íslendingum mikið metnaðarmál að stofnaður yrði háskóli á Íslandi og að fá handritin aftur til Íslands,“ segir hann um handritamálið. Það segir Haraldur ekki eingöngu hafa snúist um að fá sjálf handritin aftur heim heldur líka rannsóknir á þeim.
„Kaupmannahafnarháskóli var þungamiðja rannsókna í íslenskum miðaldafræðum á 19. öld en það var Íslendingum metnaðarmál að þessi þungamiðja flyttist til Íslands. Fyrsta skrefið var að stofna háskóla.
Yrði miðstöð rannsókna
Þegar Háskóli Íslands var stofnaður 1911 varð hann til við samruna Prestaskólans, Læknaskólans og Lagaskólans. Eina nýja deildin sem var stofnuð var heimspekideild. Meginviðfangsefni hennar voru norræn fræði. Þar luku nemendur ekki embættisprófi, eins og í hinum deildunum, heldur meistaraprófi í norrænum fræðum. Það sýnir kannski dálítið stöðu þeirra fræða að fyrsti rektor Háskóla Íslands var Björn M. Ólsen,“ segir Haraldur en Björn helgaði sig rannsóknum á fornbókmenntum Íslendinga.
„Þannig að metnaður Íslendinga stóð alltaf til þess að Háskóli Íslands yrði miðstöð rannsókna í norrænum fræðum. Fyrsta skrefið var að stofna Háskóla Íslands og næsta skref var síðan að fá handritin heim.
Svona hefur þetta gengið, skref fyrir skref, stofnun Háskólans, stofnun Handritastofnunar, síðan kom stærstur hluti af handritasafni Árna Magnússonar heim og stofnuð var öflug rannsóknastofnun sem ber nafn Árna.
Og nú eru Háskóli Íslands og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum orðin miðstöð íslenskra miðaldafræða í heiminum. Hér eru stundaðar rannsóknir og kennsla. Fyrir utan það að kenna þessi fræði á íslensku hefur undanfarin 20 ár verið byggt upp alþjóðlegt rannsóknarnám í þessum fræðum sem laðar að sér nemendur hvaðanæva úr heiminum. Þannig að nú má segja að þessu markmiði hafi verið náð.“
Tæpar fimm milljónir í skólagjöld fyrir nema utan EES
85 ársnemagildi frá ríkinu
Í svari mennta-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins við fyrirspurn Morgunblaðsins kom fram að enginn styrktarsjóður yrði á móti skólagjöldum fyrir erlenda nemendur en að auk undanþáguflokka fengju háskólar úthlutaðan kvóta til niðurfellingar eða lækkunar skjólagjalda erlendra nema sem myndu ella borga skólagjöld. Ráðuneytið sagðist gera veitt skýrari svör á næstu dögum. Unnið væri með hagaðilum að útfærslum á mögulegum undanþágum sem yrðu birtar í reglugerð síðar í mánuðinum.
„Kvótinn er reiknaður í ársnemaígildum í reikniflokki A samkvæmt reiknilíkani háskóla [lægsti reikniflokkur í reiknilíkani stjórnvalda] og er ákveðinn 85 ársnemaígildi í fjárlögum 2027. Kvótinn skiptist svo niður á háskóla eftir sögulegu hlutfalli erlendra nema í skólunum. Nemendur sem eru teknir inn á kvóta haldast inni í reiknilíkani háskóla, sem þýðir að loknar ECTS-einingar þeirra og brautskráningarframlög eru talin með innlendum nemendum.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

