Danir eyðilögðu fallega stund Portúgals
Danmörk niðurlægði Portúgal, 4:1, í 5. umferð 4. riðils A-deildar í knattspyrnu í Portúgal í kvöld. Portúgal situr enn í fyrsta sæti riðilsins með 12 stig á meðan Danir klifra upp í annað sætið með níu stig.
Þetta var fyrsti leikur portúgalska landsliðsins eftir að Cristiano Ronaldo tilkynnti að hann væri hættur með landsliðinu og var hann bæði heiðraður fyrir leik af leikmönnum sem allir klæddust treyju númer sjö og síðan á sjöundu mínútu leiksins þegar stuðningsmenn Portúgal klöppuðu í heila mínútu.
Danir gerðu hins vegar allt sem í þeirra valdi stóð til að skemma þessa fallegu stund og kom fyrsta markið frá Pierre Emil-Höjberg á 43. mínútu er hann skoraði af vítapunktinum.
Rasmus Höjlund bætti síðan við öðru marki Dana á 50. mínútu er hann skallaði boltann í netið einn og yfirgefinn inni í teig og var síðan aftur á ferðinni sjö mínútum seinna er hann gabbaði Renato Vega upp úr skónum og þrumaði boltanum í netið.
Joachim Andersen fullkomnaði síðan niðurlæginguna með frábærum skalla á 75. mínútu en Bernardo Silva náði síðan að klóra í bakkann og minnka muninn á þriðju mínútu uppbótartíma.
Svekkjandi tap lærisveina Heimis
Heimir Hallgrímsson og lærisveinar hans í írska landsliðinu töpuðu gegn Austurríki, 1:0, í 5. umferð 3. riðils B-riðils í Austurríki.
Írland hefði með sigri í dag komið sér upp í annað sætið en situr nú í því þriðja með fimm stig. Austurríki er í efsta sætinu með 11 stig.
Markalaust var í hálfleik en á 78. mínútu kom Sasa Kalajdzic boltanum í netið og reyndist það vera sigurmarkið.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

