„Hópkynlíf fimm sinnum í viku braut mig algjörlega niður“

Pressan

Laugardaginn 14. nóvember 2026 21:30

Sondra Theodore og Hugh Hefner 1979. Mynd:Getty

„Þetta var eins og sértrúarsöfnuður. Konurnar voru sannfærðar um að þær væru hluti af fjölskyldu hans. En raunverulega taldi hann sig eiga þær. Það voru leikfélagar sem tóku of stóran skammt, sem tóku eigið líf.“ Þetta segir Miki Garcia, sem var almannatengill Playboy, fyrirtækis Hugh Hefner, um það sem gerðist í Playboyhöllinni svokölluðu.

Þetta kemur fram í heimildarmyndinni, Secrets of Playboy, þar sem margir fyrrum íbúar Playboyhallarinnar og starfsfólk segir frá hinu daglega lífi þar sem einkenndist af eiturlyfjaneyslu og hópkynlífi og margskonar kynsvalli.

Sondra Theodore, er fyrrum Playboyfyrirsæta og leikkona og hún hefur ekki fagrar sögur að segja af Hefner og lífinu í höllinni. Hún og Hefner byrjuðu að stinga saman nefjum í lok áttunda áratugarins en ekki leið á löngu þar til ofnotkun Hefner á kókaíni og kynlífi setti svo sannarlega mark sitt á hversdagslífið. „Að lokum var ég hrædd við hann. Það var ekki hægt að fullnægja honum. Hann vildi meira og meira og meira. Það var hópkynlíf minnst fimm kvöld í viku. Það var handrit, honum fannst gaman að stjórna og þú vékst ekki frá því, því þú sást að það pirraði hann,“ segir hún í myndinni að sögn Daily Mail.

Á hverju kvöldi varð hún að „vera með sömu sýninguna“ þar sem hún og Hefner buðu nýjar stúlkur velkomnar í fjölskylduna. En allt var þetta lygi. „Ég sá stúlku eftir stúlku birtast, saklausar, fallegar og fegurð þeirra skolaðist bara á brott. Við vorum ekkert í hans augum. Hann var eins og blóðsuga. Hann saug lífið úr þessum stúlkum áratugum saman,“ segir hún í myndinni og bætir við: „Þessi reynsla braut mig algjörlega, eins og þú brýtur hest niður.“

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅