Sögulegur árangur karlalandsliðsins
Íþróttir | mbl | 14.11.2026 | 21:30
Karlalandslið Íslands stóð uppi sem sigurvegari á Norður-Evrópumótinu í dag. Ljósmynd/ Fimleikasamband Íslands
Karlalandslið Íslands í áhaldafimleikum skrifaði stóran kafla í íslenska fimleikasögu er liðið sigraði á Norður-Evrópumótinu í áhaldafimleikum í fyrsta sinn í sögunni í dag.
Liðið skipuðu þeir Dagur Kári Ólafsson, Ágúst Ingi Davíðsson, Ari Freyr Kristinsson, Jónas Ingi Þórisson, Martin Bjarni Guðmundsson og Atli Snær Valgeirsson.
Dagur Kári gerði enn betur og stóð uppi sem sigurvegari í fjölþraut karla á meðan Ágúst Ingi tryggði sér annað sætið. Íslendingar skipuðu því tvö efstu sætin í fjölþrautinni.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
