Lygileg frammistaða Hauks í svekkjandi jafntefli
Haukur Þrastarson var ótrúlegur er Rhein-Necker Löwen skildi jafnt við Lemgo Lippe í 12. umferð þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í kvöld.
Leikurinn var jafn frá upphafi til enda og náði Lippe að kreista fram jafntefli í blálokin með því að skora síðustu tvö mörk leiksins.
Haukur skoraði níu mörk í leiknum en ekki nóg með það heldur var hann einnig stoðsendingahæstur með sjö stoðsendingar.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗