Enginn óhultur þar sem Ragnar og Yrsa eru stödd
Helgarferð Ragnars Jónassonar og Yrsu Sigurðardóttur í Kerlingarfjöll setur mark sitt á sameiginlega glæpasögu þeirra sem kemur út árið 2027. Bókin gerist á hálendinu og meðal annars lokast fólk inni í helli þegar jarðskjálfti ríður yfir.
Þetta kemur fram í samtali við rithöfundana í Spursmálum. Þar lýsa þau því hvernig dvöl á hóteli í Kerlingarfjöllum hafi veitt þeim innblástur við skrifin. Ragnar segir að fallegir staðir geti hæglega ratað inn í glæpasögur þeirra og þar sé enginn óhultur.
Hafði áhrif á sögusviðið
Þáttarstjórnandi spyr þau út í ferðina og hvað þau hafi verið að gera á þessum slóðum. Ragnar segir þau hafa tekið sér helgarfrí, en á þeim tíma hafi þau verið að skrifa bók sem gerist á hálendinu.
Dvölin hafi síðan haft bein áhrif á hvernig sögusviðið þróaðist.
„Ég held að það sé óhætt að segja að við vorum, það var nú svona smá inspirerandi að vera á þessu hóteli,“ segir Ragnar. Hótelið sem þau hafi verið að skrifa um hafi við það orðið að hótelinu þar sem þau dvöldu.
Lokast inni eftir jarðskjálfta
Ragnar staðfestir að bókin sé væntanleg árið 2027. Hann segir söguna tvíþætta og að atburðir hennar gerist annars vegar í helli á hálendinu og hins vegar á hóteli.
Hann hikar fyrst við að upplýsa meira um atburðarásina en ákveður síðan að deila atriði sem þau hafi þegar sagt frá á Iceland Noir-hátíðinni.
Fólk fari inn í helli og jarðskjálfti ríði yfir og það lokast inni.
„Og þannig hefst sagan. Þannig að þetta er tvíþætt saga,“ segir Ragnar.
Stefán einar telur í framhaldinu rétt að taka fram að lesendur þurfi ekki að óttast ferð í Kerlingarfjöll þrátt fyrir þessar lýsingar á væntanlegri bók.
„Nei, alls ekki, alls ekki,“ svarar Ragnar.
Eins og að vera einn á hálendinu
Þau fara jafnframt hlýjum orðum um staðinn. Ragnar segir ferðina þangað magnaða. Eftir akstur upp á hálendið, um ótrúlega náttúru og langt út í óbyggðir, birtist skyndilega hótel.
Yrsa segir hönnunina eiga stóran þátt í upplifun gesta. Hvort sem gist sé í litlum kofa eða á hótelinu sjálfu fái gesturinn tilfinningu fyrir því að vera einn.
„Þú horfir, allir með svaka flott útsýni og þú sérð einhvern veginn ekkert til hliðar og það er eins og þú sért einn bara á hálendinu einhvern veginn,“ segir hún.
Lýsingin á kyrrðinni og einverunni fær síðan annan blæ þegar Ragnar tengir hana aftur við starf þeirra beggja. Fallegt umhverfi vekur greinilega ekki aðeins löngun til að njóta útsýnisins heldur getur líka kveikt hugmyndir að vettvangi næstu glæpasögu.
„Þetta kennir okkur það að hvert sem að við Yrsa förum, þar er enginn óhultur,“ segir Ragnar.
Viðtalið við Yrsu og Ragnar er aðgengilegt í spilaranum hér að neðan:
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗