Vegagerðin: Óheppileg staða

Vegagerðin segir lagareglur skorta um framkvæmd hættumats vegna sjávarflóða. Skýra þurfi hvaða réttaráhrif slíkt mat eigi að hafa við skipulagsgerð. mbl.is/Árni Sæberg

Vegagerðin segir að í einhverjum tilvikum hafi komið upp vafi um hvort og að hvaða marki stjórnvöldum beri að grípa til varna gegn sjávarflóðum. Stofnunin telur stöðuna óheppilega og vill skýra lagalegar skyldur stjórnvalda. Þá sé viðhaldi sjóvarna víða ábótavant.

Þetta kemur fram í umsögn Vegagerðarinnar til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis um þingsályktunartillögu um endurskoðun laga um sjávarflóðavarnir, ofanflóðavarnir og náttúruvá.

Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar, er fyrsti flutningsmaður tillögunnar. Lagt er til að ríkisstjórninni verði falið að endurskoða lagaumgjörð um áhættumat, áætlanagerð og fjármögnun innviða og annarra aðgerða vegna sjávarflóða og eftir atvikum annarrar náttúruvár.

Vilja skýra reglur um byggð á hættusvæðum

Vegagerðin segir lagareglur skorta um framkvæmd hættumats vegna sjávarflóða. Skýra þurfi hvaða réttaráhrif slíkt mat eigi að hafa við skipulagsgerð.

Stofnunin vill að skilgreind verði lágmörk um hæð mannvirkja yfir sjávarmáli og fjarlægð þeirra frá sjávarkambi. Jafnframt þurfi að taka afstöðu til þess að hvaða leyti takmarka eigi byggð þar sem hættan er mest.

Þá þurfi skýrar lagaheimildir og skyldur um varnir þar sem byggð hafi verið heimiluð á þekktum flóðasvæðum.

Viðhaldi sjóvarna víða ábótavant

Vegagerðin hefur litið svo á að ríkisframlög til sjóvarna eigi fyrst og fremst að renna til nýbyggingar þeirra. Viðhaldi hafi hins vegar víða verið ábótavant og því hafi reynst nauðsynlegt að nota framlög til endurbyggingar.

Stofnunin telur ekki unnt að fullyrða að þörf sé á uppstokkun stjórnsýslu málaflokksins. Leggur hún áherslu á að nýta betur og samþætta sérþekkingu þeirra stofnana sem þegar sinna honum.

Skoði sameiginlega umgjörð um varnir

Í þingsályktunartillögunni er meðal annars lagt til að metið verði hvort fyrirkomulag ofanflóðavarna og ofanflóðasjóðs henti einnig fyrir sjávarflóðavarnir.

Þá verði skoðað hvort stofna eigi sérstakan sjóð, útvíkka starfssvið ofanflóðasjóðs eða koma á fót nýrri stofnun sem beri heildarábyrgð á áhættumati og vörnum gegn náttúruvá.

Í greinargerð tillögunnar segir að ekki sé til heildstætt áhættumat vegna sjávarflóða við strendur Íslands. Þar er jafnframt vísað til mikils tjóns þegar sjór flæddi á land víða á suðvesturhluta landsins fyrstu helgina í mars 2025.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅