Kristinn öflugur í stórsigri

Kristinn Pálsson

Kristinn Pálsson Eyþór Árnason

Landsliðsmaðurinn Kristinn Pálsson átti frábæran leik er Alicante vann stórsigur gegn Palma, 100: 66, í 8. umferð næstefstu deildar spænska körfuboltans í kvöld.

Alicante er því enn ósigrað og situr í efsta sæti deildarinnar með fullt hús stiga.

Alicante sýndi mikla yfirburði í kvöld og var með forystuna allan leikinn og var 34 stiga sigur niðurstaðan.

Kristinn lék aðeins 15 mínútur en á þeim tíma skoraði hann 11 stig, þar sem hann hitti úr þremur þriggja stiga skotum, og gaf þrjár stoðsendingar. Stigahæstur í kvöld var liðsfélagi Kristins, Rafeal Lisboa, en hann skoraði 15 stig.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅