Martin maður leiksins á Þýskalandi
Martin Hermansson var frábær er Alba Berlín sigraði Oldenburg, 95: 77, í 9. umferð efstu deildar þýska körfuboltans í kvöld.
Berlín situr því í 9. sæti deildarinnar með átta stig en níunda sætið er umspilssæti um þátttöku í úrslitakeppninni.
Martin var maður leiksins þar sem hann skoraði 14 stig og gaf 7 stoðsendingar ásamt því að hitta úr öllum þriggja stiga skotum sínum, eða fjórum, á aðeins 15 mínútum.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗