Skelfilegir spádómar Nostradamusar fyrir 2027
Spámaðurinn Nostradamus lést fyrir rúmlega 450 árum en miðað við það sem aðdáendur hans segja, þá virðist hann hafa séð ansi langt inn í framtíðina og hafi meðal annars sett fram spádóma um stóra atburði á næsta ári.
Ef spádómar Nostradamusar, sem hét fullu nafni Michel de Nostredame, eru réttir þá stefnir í ansi viðburðaríkt ár 2027.
Það er rétt að hafa í huga að Nostradamus nefndi ekki árið 2027 sérstaklega í spádómum sínum en Sky History telur að sumir þeirra eigi við árið 2027.
Einn af spádómum hans hefur verið túlkaður sem svo að miklir eldar muni herja á jörðina á næsta ári og virðist sem hann hafi átt við allar heimsálfur í þessu sambandi.
Hann virðist einnig segja að miklar efnahagslegar hamfarir sé að sjá við sjóndeildarhringinn. Virðist sem hann hafi sagt að virði gulls og silfurs sé ofmetið og að miklar skuldir sligi og þetta muni hafa í för með sér að hlutabréf og aðrir fjárhagslegar gjörðir muni þurrkast út.
Hvað varðar Miðausturlönd þá telja sumir að hann hafi spáð því að Íranar muni hertaka borgina Trabzon í norðausturhluta Tyrklands.
Hann virðist einnig hafa spáð fyrir um pólitískan óróa í Frakkland en þar verður nýr forseti kjörinn á næsta ári. Ekki kemur fram í hverju þessi pólitíski órói er fólginn.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗