Eyddi ævisparnaðinum í „endalausa“ skemmtisiglingu – Komst ekki um borð í skipið

Lisa McKay tók þá ákvörðun að eyða ævisparnaðinum í „endalausa“ siglingu á lúxusíbúðaskipi. Hún náði ekki að komast um borð í skemmtiferðaskipið áður en útgerð þess fór á hausinn.

LadBible skýrir frá þessu og segir að Lisa hafi verið við það að flytja um borð í lúxusíbúðarskipið Villa Vie Odyssey þegar hún komst að því að farþegum þess hafði verið skipað að fara frá borði í Víetnam eftir að útgerðin varð fjárvana og gat ekki haldið siglingunni áfram.

Það var þann 27. október sem rúmlega 200 farþegum skipsins var sagt að taka saman föggur sínar og yfirgefa skipið þegar það var í höfn í Sihanoukville. Bandarísk útgerð þess gaf þá skýringu að eldsneytisverð gerði að verkum að útgerðin gæti ekki haldið starfsemi sinni áfram.

Sigling skipsins hófst 2024 þegar það lét úr höfn í Belfast á Norður-Írlandi og var ætlunin að fara í þriggja og hálfs árs hnattsiglingu en eftir tveggja ára siglinu gafst útgerðin upp.

Siglingin var sögð vera „endalaus“ og farþegarnir höfðu flestir selt eigur sínar og flutt um borð og ætluðu að njóta lífsins á hafi úti.

Mikael Petterson, stofnandi útgerðarinnar, sagði í samtali við Business Insider að honum líði „hryllilega“ vegna stöðunnar sem hann segir vera vegna hins háa eldsneytisverðs.

McKay sagði í samtali við ABC News að draumur hennar sé nú orðin að engu. „Þetta átti að vera besta ferð ævinnar,“ sagði hún en hún greiddi sem nemur um 5,5 milljónum króna fyrir ferðina. En hún náði ekki einu sinni að stíga fæti um borð í skipið áður en draumurinn var úti. „Ég á ekki peninga til að eyða og tapa. Þetta er bara búið að vera hræðilegt, algjörlega hræðilegt,“ sagði hún.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅