Samdráttur í jólabjórssölu hjá ÁTVR
Arnar Sigurðsson, kaupmaður í Santé, hefur haft í nægu að snúast síðan sala hófst á innfluttum Tuborg julebryg fyrir rúmri viku síðan.
Sala á jólabjór fer mun hægar af stað í Vínbúðunum í ár en undanfarin ár. Fyrstu vikuna þetta árið, frá fimmtudegi í síðustu viku og út miðvikudag í þessari viku, seldist 89.491 lítri af jólabjór í verslunum ÁTVR. Á sama tíma í fyrra seldust 125.448 lítrar. Samdrátturinn nemur 29% á milli ára.
Erfitt er að fullyrða hvað veldur þessum samdrætti og í ljós verður að koma hvort salan tekur við sér þegar fram líða stundir. Hins vegar verður ekki fram hjá því horft að netverslanir með áfengi hafa verið að sækja í sig veðrið síðustu misseri. Að þessu sinni flutti ein þeirra, Santé, inn mikið magn af Tuborg julebryg og selur hann 20% ódýrar en ÁTVR gerir.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗