Haaland með kostulegt svar um fjárlagabrot City

Erling Haaland.

Erling Haaland. AFP/Paul Ellis

Stjörnuleikmaðurinn Erling Haaland tjáði sig um dómsmál Manchester City eftir að félagið var fundið sekt fyrir gróf brot á 114 fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar eftir leik Noregs gegn Wales í kvöld.

Haaland, sem skoraði þriðja mark Noregs í 3:1-sigri liðsins, var spurður út í dómsmál City eftir leik í viðtali við dönsku sjónvarpsstöðina TV2.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann tjáir sig um þetta málefni en í þetta sinn hamraði Haaland á því að leikmenn liðsins í dag hefðu ekkert með þessi fjárlagabrot að gera þar sem þau áttu sér stað á árunum 2009 til 2018:

„Það eru margir sem myndu vilja spyrja þig út í það sem hefur gerst hjá Manchester City. Áður en þú komst þangað voru þeir sakfelldir fyrir 114 brot. Hvað finnst þér um stöðuna hjá vinnuveitanda þínum?“ spyr TV 2

„Á þeim tíma spilaði ég með U9-liði Bryne árið 2009. Ég spilaði síðan með U10-liðinu árið 2011, U11 árið 2012, U12 árið 2013. Þarf ég að halda áfram?“

„Árið 2016 minnir mig á að ég hafi fengið að spila með meistaraflokknum. 2017 fór ég til Molde. Þannig þetta er spurning sem ég á virkilega erfitt með að svara. Þetta er lagaleg barátta. Þetta er mál á milli ensku úrvalsdeildarinnar og Manchester City. Ætti ég að svara þessu? Ég veit það eiginlega ekki,“ segir Haaland.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅