Gómsæt kvöldstund fyrir framan skjáinn

Góð bíómynd og eitthvað gott að maula er uppskrift að notalegri kvöldstund. Samsett mynd

Það er afar auðvelt að gleyma sér í öllum hamaganginum fyrir jólin. Milli vinnu, skóla, fjölskyldulífs, jólaundirbúnings og alls hins sem við reynum að koma fyrir í dagskránni er einfaldlega nauðsynlegt að finna stund til að slaka á og njóta. Borða eitthvað gott, hitta vini, skála og hlæja eða einfaldlega koma sér fyrir í sófanum með konfektdolluna, já, dolluna, og horfa á góða bíómynd.

Margir velja jólamynd, en fyrir mataráhugafólk gæti verið gaman að rifja upp nokkrar góðar myndir þar sem matur, sætindi og matreiðsla eru í aðalhlutverki. Renndu endilega yfir listann sem Matarvefurinn skellti saman og veldu þér eitthvað gott til að horfa á næstu vikurnar. Kannski færðu um leið hugmynd að nýjum rétti á jólaborðið.

Chocolat (2000)

Juliette Binoche leikur heillandi og metnaðarfulla einstæða móður sem flytur með dóttur sinni í lítið franskt þorp og opnar súkkulaðiverslun. Freistingarnar falla þó ekki öllum í kramið og fljótlega fer að hrikta í gömlum venjum þorpsbúa. Rómantísk mynd sem ætti að heilla súkkulaðielskendur upp úr skónum. Með önnur hlutverk fara Lena Olin, Alfred Molina, Johnny Depp og Judi Dench.

Ratatouille (2007)

Rottuna Remy dreymir um að verða stjörnukokkur í París, þótt rottur séu auðvitað ekki sérstaklega velkomnar í eldhúsum veitingastaða. Þegar hann kynnist hinum klaufalega Linguini hefst óvenjuleg en bráðfyndin atburðarás. Stórskemmtileg teiknimynd sem ungir sem aldnir hafa gaman af.

Julie & Julia (2009)

Julie Powell ákveður að elda allar 524 uppskriftirnar í matreiðslubók Juliu Child á einu ári og blogga um það. Samhliða fylgjumst við með því hvernig Child sjálf kynntist franskri matargerð og skrifaði matreiðslubókina Mastering the Art of French Cooking. Meryl Streep og Amy Adams fara með aðalhlutverkin í þessari einstaklega skemmtilegu mynd.

Chef (2014)

Eftir að kokkurinn Carl Casper segir skilið við starf sitt á flottum veitingastað í Los Angeles ákveður hann að byrja upp á nýtt. Hann opnar matarvagn og leggur af stað í ferðalag um Bandaríkin með syni sínum og félaga. Á leiðinni enduruppgötvar hann ástríðuna fyrir matargerð. Jon Favreau leikur aðalhlutverkið í þessari gómsætu kvikmynd.

Burnt (2015)

Bradley Cooper leikur hæfileikaríkan kokk sem hefur rústað orðspori sínu en fær tækifæri til að byrja upp á nýtt í Lundúnum. Hann ætlar sér stóra hluti en þarf að læra að vinna með öðrum og halda skapinu í skefjum svo hann geri ekki sömu mistökin aftur.

The Menu (2022)

Ungt par heldur út á afskekkta eyju til að borða á rándýrum veitingastað þar sem frægur kokkur hefur skipulagt ógleymanlega kvöldstund. Ralph Fiennes og Anya Taylor-Joy fara með aðalhlutverkin í þessari svörtu kómedíu og hrollvekju þar sem kvöldið tekur heldur betur óvænta stefnu.

No Reservations (2007)

Catherine Zeta-Jones leikur metnaðarfullan kokk sem vill helst hafa fulla stjórn á öllu, bæði í eldhúsinu, eigin lífi og lífi annarra. Tilveran fer þó úr skorðum þegar hún tekur að sér unga systurdóttur sína og fær nýjan samstarfsmann í eldhúsið, leikinn af Aaron Eckhart. Hún þarf þá að endurmeta ýmislegt, læra að opna sig og kynnast sjálfri sér á ný.

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅