Einn fær 2,5 milljónir
Innlent | mbl | 14.11.2026 | 19:59
Enginn hlaut fyrsta vinning í Lottóútdrætti kvöldsins og verður potturinn því fjórfaldur að viku liðinni. Fyrsti vinningur gaf rúmar 44 milljónir króna.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá.
Einn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker og fær hann 2,5 milljónir. Miðinn var í áskrift.
Þrír voru með annan vinning og fá þeir hvor um sig 125.000 krónur. Allir miðarnir voru keyptir í Lottósmáforritinu.
Fjórir miðahafar voru með bónusvinninginn og fær hver þeirra tæpar 162 þúsund krónur í sinn hlut. Einn miðinn var keyptur á Olís á Siglufirði, einn miðinn á lotto.is og tveir miðar eru í áskrift.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗