Óeirðir eftir fjölmenn mótmæli á Spáni

Til átaka kom milli mótmælenda og lögreglu í Barselóna eftir fjölmenn mótmæli vegna hás húsnæðiskostnaðar. Kveikt var í stórum ruslagámum og voru átján handteknir.

Hundruð þúsunda gengu fylktu liði víðs vegar um Spán í vikunni samhliða allsherjarverkfalli vegna húsnæðiskostnaðar og kaupmáttar.

Aðeins nokkrar vikur eru þar til gengið verður til þingkosninga sem boðað hefur verið til með fyrirvara.

„Ef við höfum ekki heimili getum við ekki unnið. Ef við getum ekki unnið getum við ekki lifað,“ sagði námsmaður sem tók þátt í mótmælunum við AFP-fréttastofuna.

内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅