Íhuga að tvöfalda framleiðslugetuna

Verksmiðja TDK í Eyjafirði.

Verksmiðja TDK í Eyjafirði. Ljósmynd/Aðsend

Forsvarsmenn álþynnuverksmiðjunnar TDK Foil á Akureyri íhuga nú að stækka starfsstöð fyrirtækisins á Akureyri og tvöfalda þannig framleiðslugetu verksmiðjunnar. 

Þetta kemur fram í bréfi sem fyrirtækið sendi skipulagsráði Akureyrarbæjar og tekið var fyrir á fundi í vikunni. Er það óskað eftir fundi með skipulagsyfirvöldum á Akureyri til að ræða framtíðaruppbyggingu. 

Skipulagsráðið tekur jákvætt í erindið og hefur falið skipulagsfulltrúa bæjarins að skoða það nánar í samráði við umhverfis- og mannvirkjasvið bæjarins. 

Yrði þröngt um bygginguna

Stefna TDK er að taka ákvörðun innan nokkurra mánaða um hvort haldið verði áfram með verkefnið. 

Félagið var stofnað árið 2009 og hét þá Becromal en nafni þess var breytt í TDK Foil Iceland árið 2018. Segir í erindinu að ný kynslóð framleiðslubúnaðar krefjist verulega stærri byggingar en þeirrar sem nú er í notkun. 

Félagið hefur get grófa bráðabirgðaáætlun um nauðsynlega stærð byggingarinnar og sett fótspor hennar inn á núverandi deiliskipulag. Leiddi þetta í ljós að mjög þröngt yrði um slíka byggingu meðal annars vegna nálægðar við Krossanesbraut.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅