Argentína tapaði fyrsta leiknum án Messi í 21 ár

Julian Alvarez skoraði eina mark Argentínu í dag.

Julian Alvarez skoraði eina mark Argentínu í dag. AFP/Alejandro Pagni

Argentína mátti þola tap gegn Úrúgvæ, 2:1, í fyrsta leik þjóðarinnar eftir að Lionel Messi lagði skóna á hilluna með landsliðinu í vináttulandsleik þjóðanna í Búenos Aíres í dag.

Messi lék sinn síðasta leik með argentíska landsliðinu í síðasta mánuði og batt það enda á 21 árs langan feril en hann spilaði 208 leiki, varð heimsmeistari einu sinni og fór í úrslit heimsmeistarakeppninnar þrisvar ásamt því að verða Suður-Ameríkumeistari tvisvar á þessum farsæla ferli.

Var leikurinn í dag því fyrsti leikur Argentínu síðan árið 2005 án Messi og byrjaði það fremur illa.

Markalaust var í hálfleik en í þeim seinni komst Úrúgvæ í tveggja marka forystu á 53. mínútu með tveimur mörkum með stuttu millibili. Julian Álvarez, leikmaður Atletíco Madrid, minnkaði muninn á 73. mínútu en það dugði ekki til.

Til að bæta gráu ofan á svart greindi The Athletic frá því að Bombonera-völlurinn, þar sem leikurinn fór fram, væri hálftómur.

Spænska dagblaðið AS greinir enn fremur frá því að ástæðan fyrir slæmri aðsókn á völlinn hafi verið hátt miðaverð og ósætti við það hvernig miðum hafi verið dreift.

„Við þurfum að finna okkur sjálfa á ný án Leo Messi og við höfum mannskapinn til að skilja þetta tap eftir að baki. Við fundum ekki augnablikið fyrir ungu strákana til að spila sinn fótbolta. Við getum ekki ætlast til þess að þeir beri liðið á herðum sér, það er erfitt, og liðsfélagar þeirra munu hjálpa þeim,"

„Fólk mun koma til að styðja okkur, jafnvel þótt Messi sé ekki lengur hér. Við þurfum að veita stuðningsmönnunum innblástur,“ sagði Lionel Scaloni, þjálfari liðsins eftir leik. 

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅