Pútín hefur dáleitt þjóð sína svo raunveruleiki stríðsins nær ekki til hennar
Pressan
Laugardaginn 14. nóvember 2026 19:30
Vladimír Pútín Rússlandsforseti. Mynd/Getty
Fjórir af hverjum tíu Rússum eiga fjölskyldumeðlim sem tekur, eða hefur tekið, þátt í stríðinu í Úkraínu. En þrátt fyrir það hefur hið mikla mannfall ekki valdið miklum óróa innanlands. Vísindamenn telja að hugsanlega skýringu á þessu sé að finna í ótta og „þyrnirósarsvefni“ samfélagsins.
Þrátt fyrir að stríðið hafi nú staðið yfir í tæp fimm ár þá er umræða og umfjöllun um það meira tabú í Rússlandi en kynlíf og peningar. Meira að segja ættingjar og gamlir vinir forðast að ræða stríðið sem hefur kostað mörg hundruð þúsund manns lífið beggja megin víglínunnar.
Það er nóg sem væri hægt að ræða. ExtremeScan, sem er hópur rússneskra blaðamanna í útlegð, telur að milli 2,5 og 3 milljónir Rússa hafi haft beina aðkomu að stríðinu, annað hvort á vígvellinum eða við að þjónusta herinn að baki víglínunnar.
Af þeim hafa rúmlega 350.000 fallið og er það varfærið mat sem BBC og rússneski miðillinn Mediazona gerðu á grunni rússneskra gagnagrunna. Talið er að rúmlega ein milljón rússneskra hermanna hafi særst í stríðinu.
En hvort sem hermennirnir enda í kirkjugarðinum, á herspítala eða koma heilir á húfi heim, þá vita ættingjar og nánir vinir um sögu þeirra.
ExtremeScan segir að þarna geti verið um 20-30 manns að ræða sem þekki sögu hvers og eins. Þetta þýði að nokkrar milljónir Rússa eigi ættingja sem taki þátt í stríðinu.
Rússnesk stjórnvöld gera allt sem í þeirra valdi stendur til að leyna raunveruleika stríðsins, allt frá því að halda fast í söguna um að ekki sé um stríð að ræða, heldur „sérstaka hernaðaraðgerð“ til þess að gera það refsivert að taka myndir af gröfum hermanna (margra ára fangelsi liggur nú við því). En það er ekki hægt að koma í veg fyrir að víða í samfélaginu er fylgst með hinum mikla fórnarkostnaði sem fylgir stríðinu.
Þrátt fyrir þetta hefur stríðið bara mætt mjög takmarkaðri mótspyrnu meðal þjóðarinnar og margir Rússar virðast aðeins yppta öxlum yfir því.
Þetta má að hluta til skýra með því að öll mótmæli eru barin niður og sá ótti sem það hefur vakið.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗