Hrósaði ungu leikmönnum Íslands í hástert
„Mér fannst við byrja af krafti og halda því út. Við spiluðum vel saman og góða vörn. Þegar við gerum það erum við bara ógeðslega góðar,“ sagði Thelma Dís Ágústsdóttir, landsliðskona í körfubolta, í samtali við mbl.is eftir sigur Íslands á Sviss, 100:82, í Ólafssal á Ásvöllum í dag.
Ísland hefur unnið báða leiki sína í forkeppni undankeppni EM 2029 og tekur næst á móti Aserbaídsjan á sama stað á þriðjudaginn. Íslenska liðið komst í 14:1 snemma leiks og þótt Sviss næði að minnka muninn nokkrum sinnum hafði Thelma trú á að sigurinn væri innan seilingar.
„Ég var allavega ekkert orðin stressuð. Við vissum samt alveg að þær voru ekkert að fara að gefast upp,“ sagði hún.
Thelma nýtur þess að taka þátt í verkefni þar sem íslenska liðið getur gert sér vonir um sigur í hverjum leik.
„Þetta er bara mjög skemmtilegt. Mér finnst skemmtilegt að koma inn í verkefni og fara í svona leiki þar sem við eigum góða möguleika á að vinna þá alla.“
Hún var ánægð með stuðninginn í Ólafssal og vonast eftir góðri mætingu gegn Aserbaídsjan.
„Það var geggjuð stemning og geggjað að fá þessa áhorfendur. Ég vona að þeir sjái sér fært að mæta aftur á þriðjudaginn.“
Yngri leikmenn liðsins hafa látið að sér kveða og Thelma hafði á orði að hún væri farin að teljast til þeirra eldri í hópnum.
„Maður er orðinn allt of gamall í þessu liði! En þessar yngstu eru búnar að vera geggjaðar fyrir okkur og það er ógeðslega gaman að fylgjast með þeim. Það verður gaman að sjá þær halda áfram að blómstra,“ sagði Keflvíkingurinn.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗