„Þú þarft að haga þér í þessum buxum“

Glitrandi gallabuxur eru flík sem auðvelt er að klæða upp og niður á þessum árstíma segja Marta María Winkel og Edda Gunnlaugsdóttir í nýjum Dagmálaþætti. Það má auðvitað föndra þær sjálfur ef tími gefst.

„Það er samt ógeðslega mikil vinna að líma svona steina á eitthvað. Ég veit ekki hversu oft maður hefur eitthvað verið að reyna að föndra eitthvað svona þegar maður var yngri. Það klúðraðist svolítið oft, sko,“ segir Marta María.

„Það er alveg rétt. En þetta eru einhvers konar steinaskreyttar buxur, ekki algjörar pallíettubuxur. En þær glitra og þú sérð hvar ég er búin að vera í húsinu núna. Það hrynur af þeim,“ segir Edda og hlær.

„Einmitt, þannig þú þarft að haga þér í þessum buxum og getur ekki verið í einhverjum afbrotum. Þá er hægt að reka slóðina strax,“ segir Marta María.

„Það kæmist fljótt upp um mig en ég mæli með einhverju svona núna, þetta eru bara gallabuxur sem eru samt orðnar fínar með þessu skrauti,“ segir Edda.

Hér fyrir neðan geturðu horft á þáttinn í heild sinni. 

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅