Íslenskt samfélag njóti ekki vafans

Jón Pétur Zimsen þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Jóni Pétri Zimsen, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, finnst skjóta skökku við að íslenskt samfélag njóti ekki vafans þegar kemur að brottvísun erlendra ríkisborgara, sé hún talin nauðsynleg vegna öryggis ríkisins eða almannahagsmuna.

Var hann inntur viðbragða við fregnum gærdagsins um að kærunefnd útlendingamála hefði fellt úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar um að brottvísa albönskum ríkisborgara og banna honum endurkomu til Íslands í tólf ár. 

Jón Pétur er jafnframt fyrsti varaformaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis.

Hár þröskuldur

Maðurinn hafði verið dæmdur fyrir manndráp í Albaníu og var jafnframt sakborningur í máli vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni hér á landi.

Kærunefndin taldi eldri dóminn ekki nægja einan og sér til brottvísunar á þeim grundvelli sem Útlendingastofnun hafði beitt. Þá taldi nefndin gögn um kynferðisbrotamálið takmörkuð og mat lögreglu á þeirri ógn sem stafaði af manninum ábótavant.

„Auðvitað búum við í réttarríki en manni finnst skrýtið að íslenskt samfélag njóti ekki þessa vafa,“ segir Jón Pétur í samtali við mbl.is og telur það sérstakt að í máli sem þessu, þar sem um alvarlega glæpi sé að ræða, sé ekki talin næg ástæða til að brottvísa manninum.

„Mér finnst þetta ansi hár þröskuldur sem þeir hafa að réttindum hérlendis. Ef ekki er hægt að vísa svona einstaklingum á brott úr landi, hverjum er það þá sem er vísað á brott?“ segir hann.

Hann telur niðurstöðuna jafnframt senda röng skilaboð. „Miðað við það sem er að gerast þá viljum við senda sterkari skilaboð til brotamanna að þetta sé bara brottvísunarsök, það sem þessi maður gerði.“  

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅