Yfir 500 kvenleiðtogar á heimsþingi í Reykjavík
Heimsþing kvenleiðtoga verður haldið í níunda sinn í Reykjavík dagana 15.-17. nóvember. Reykjavík Global Forum
Heimsþing kvenleiðtoga, Reykjavík Global Forum, verður haldið í níunda sinn dagana 15.–17. nóvember undir yfirskriftinni „Power, Together for Community“.
Samkvæmt tilkynningu koma þar saman yfir 500 leiðtogar frá tæplega 90 löndum til að ræða lýðræði, jafnrétti, frið, efnahagslegt öryggi og alþjóðlegt samstarf. Segir enn fremur að í ljósi stöðu heimsmála verði sérstök áhersla lögð á frið og öryggi.
Nóbelsverðlaunahafi meðal gesta
Sunnudaginn 15. nóvember verður haldin vinnustofa þingkvenna í Hörpu um stafrænt ofbeldi gegn konum og þátt gervigreindar í því. Einnig verður fjallað um efnahagsleg áhrif jafnréttis og framtíð vinnumarkaðarins. Þá verða kynntar niðurstöður „Reykjavíkur-vísitölunnar“ árið 2026-2027 en hún mælir viðhorf almennings í G7-ríkjunum til karla og kvenna í leiðtogahlutverkum.
Meðal þátttakenda eru Halla Tómasdóttir forseti Íslands, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra, Julia Gillard, fyrrverandi forsætisráðherra Ástralíu, Mathias Cormann framkvæmdastjóri OECD og Jody Williams, sem vann til Friðarverðlauna Nóbels árið 1997. Einnig taka foreldrar Malölu Yousafzal þátt.
„Það er sérstaklega mikilvægt á tímum sem þessum að leiðtogar komi saman, deili reynslu og þekkingu og leiti sameiginlegra lausna,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir, stofnandi og stjórnarformaður Heimsþingsins, í tilkynningunni. Segir hún konur alla jafna hafa verið í miklum minnihluta heimsleiðtoga og því þurfi að tryggja að þær taki fullan þátt í ákvörðunum á öllum sviðum samfélagsins.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

