Selenskí: Bandaríkin viðruðu landsafsal gegn NATO-aðild

Bandarísku erindrekarnir Jared Kushner og Steve Witkoff funduðu bæði með Pútín og Selenskí í fyrradag eftir tveggja daga viðræður í Abú Dabí. Þar náðist engin afgerandi niðurstaða. AFP

Bandarísk stjórnvöld hafa viðrað þá hugmynd að Úkraína láti landsvæði af hendi til Rússlands gegn aðild að Atlantshafsbandalaginu, NATO.

Þetta segir Volodimír Selenskí Úkraínuforseti í ummælum sem birt voru í dag. Hann telur að NATO-aðild landsins sé á ný komin á dagskrá.

Selenskí varaði jafnframt við hugmyndum Rússa um að endurskipta áhrifasvæðum í Evrópu og sagði stjórnvöld í Moskvu leggja allt undir í hernaðaraðgerðum vetrarins.

Rússar hafa gert harðar árásir á Úkraínu í aðdraganda vetrar og ekkert bendir til þess að Vladimír Pútín Rússlandsforseti hyggist láta undan.

Spurðu hvort Úkraína myndi hörfa frá Donbas

Bandarísku erindrekarnir Jared Kushner og Steve Witkoff funduðu bæði með Pútín og Selenskí í fyrradag eftir tveggja daga viðræður í Abú Dabí. Þar náðist engin afgerandi niðurstaða.

Þó náðist samkomulag um að Evrópuríki tækju þátt í frekari viðræðum um að binda enda á stríðið. Á fundi í Dyflinni í gær var ákveðið að Frakkland, Þýskaland, Ítalía, Bretland og Pólland sendu fulltrúa til viðræðnanna.

„Bandaríkjamennirnir vörpuðu fram spurningu: Hvað ef Úkraína gengi í NATO? Myndi Úkraína draga sig frá Donbas? Þetta var í fyrsta sinn sem þetta var tekið upp,“ sagði Selenskí.

Hann sagði að eftir þann stuðning sem Úkraína hefði fengið við varnir sínar, uppbyggingu hersins og þann styrk sem hann hefði sýnt gætu bandamennirnir ekki einfaldlega sleppt hendinni af landinu.

Selenskí taldi NATO-aðild því aftur komna á dagskrá. Úkraína gæti styrkt bandalagið með tæplega fimm ára reynslu sinni af hernaði.

Hvorki NATO né bandarísk stjórnvöld hafa enn tjáð sig um ummælin.

Pútín hefur árum saman gagnrýnt NATO. Á fundi sínum með bandarísku erindrekunum í vikunni útilokaði hann að samþykkja veru erlendra friðargæslusveita í Úkraínu. AFP

Myndi leita afstöðu Úkraínumanna

Úkraínustjórn vill tryggja her sínum stuðning að stríði loknu. Selenskí sagði viðræður standa yfir við vestræn ríki um tilteknar öryggistryggingar.

Áður en hann féllist á nokkuð myndi hann leita afstöðu Úkraínumanna og spyrja: „Samþykkjum við þetta eða ekki?“

Hann ítrekaði að Úkraína myndi ekki viðurkenna yfirráð Rússa yfir landsvæðum sem rússneskar hersveitir hefðu hernumið.

Rússnesk stjórnvöld hafa ítrekað sagt að NATO-aðild Úkraínu sé óásættanleg. Þegar þau hófu innrásina árið 2022 héldu þau því fram að Vesturlönd hygðust taka Úkraínu inn í bandalagið.

Pútín hefur árum saman gagnrýnt NATO. Á fundi sínum með bandarísku erindrekunum í vikunni útilokaði hann að samþykkja veru erlendra friðargæslusveita í Úkraínu. Rússnesk stjórnvöld hafa jafnframt hafnað víðtækara vopnahléi í viðræðunum.

Telur mannúðartillögu yfirvarp

Pútín lagði þó fyrr í vikunni til „mannúðaraðgerð“ í borginni Kostjantynivka í austanverðri Úkraínu. Rússar tilkynntu í sumar að þeir hefðu náð borginni á sitt vald en Úkraínumenn segja enn barist þar.

Selenskí sagði tillöguna yfirvarp til að fá Úkraínumenn til að hörfa frá borginni og greiða þannig rússneskum hersveitum leið að fleiri byggðarlögum í Donetsk-héraði.

Ef Úkraína léti Kostjantynivka af hendi myndu Rússar næst beina sjónum sínum að öðrum borgum hennar í Donbas.

„Það er hugsunin að baki þessari hugmynd,“ sagði hann.

Rússneskum hersveitum hefur miðað hægt vestur á bóginn en þeim hefur ekki tekist að ná öllu Donetsk-héraði á sitt vald.

Selenskí sagði Rússa einnig hafa hafnað hléi á árásum á orkumannvirki í viðræðunum í Abú Dabí.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅