Sefur þú illa? – Segja að þetta þrennt yfirsjáist fólki yfirleitt

Pressan

Laugardaginn 14. nóvember 2026 18:30

Hún á greinilega erfitt með svefn.

Þú hefur örugglega upplifað nætur þar sem þér tekst bara ekki að sofna eða sefur illa. Kannski er of heitt í svefnherberginu, kannski horfðirðu of lengi á skjáinn. Eitthvað safnast upp með tímanum án þess að við tökum eftir því.

Evrópskir vísindamenn, sem vinna við svefnrannsóknir, vara við og segja að vandinn sé mikill hjá Evrópubúum og að þrjú sterk öfl séu að verki sem fara illa með svefn álfubúa.

Þetta eru loftslagsbreytingarnar, ójöfnuður og heilbrigði skjánotkunin.

Skýrsla vísindamannanna var birt í vísindaritinu Journal of Sleep Research þann 18. október.

Segja skýrsluhöfundar að þeir sjái miklar áskoranir fyrir svefnheilbrigði í Evrópu.

Fyrsta ógnin við svefn álfubúa er loftslagið. Heitari nætur, fleiri hitabylgjur, hávaði og léleg loftgæði gera fólki erfiðara fyrir að sofna. Vísindamennirnir segja að svefntruflanir í hita auki álagið á hjartað, skapið og öndun.

Ójöfnuður er önnur ógn. Þröngar og illa einangraðar íbúðir, meiri hávaði frá nágrönnum og umferð og skortur á menntun kemur misjafnlega niður á fólki. Sumir þjóðfélagshópar eiga erfitt með svefn og við að fá aðstoð ef svefninn er vandamál.

Þriðja ógnin er sólarhringsmenningin. Vaktavinna, að vera stöðugt í sambandi og með skjá í hönd langt fram á kvöld truflar dægurryþma líkamans.

Í skýrslunni kemur fram að 21% Evrópubúa vinni vaktavinnu.

Við öll þessi vandræði bætist sívaxandi „sleepmaxxing“ trend en í því felst að fólk reynir að ná hinum fullkomna svefni með því að nota mælitæki. Þetta getur valdið svefnkvíða.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅