Nú hafa Demókratar völdin til að breyta því hvernig næsti forseti verður kjörinn

Pressan

Laugardaginn 14. nóvember 2026 18:30

Hvíta húsið - Mynd/Pixabay

Hin bláa bylgja sem reið yfir Bandaríkin í kosningunum þann þriðja nóvember hefur nú fært Demókrötum gullið tækifæri til að breyta því hvernig forsetakjör fer fram í framtíðinni.

Stórsigur Demókrata í kosningum til þingsins og ýmissa embætta í einstökum ríkjum var nokkuð óvæntur. Flestir reiknuðu með sigri þeirra en alls ekki að hann yrði svona stór. Hefur sigrinum verið lýst sem yfirlýsingu kjósenda um andstöðu þeirra við hugmyndafræði Donald Trump og MAGA-hreyfingarinnar.

Eitt af því sem Demókratar hafa nú í höndum sér eftir kosningarnar eru pólitísk völd til að breyta því hvernig forsetakjör fer fram.

Í Bandaríkjunum eru það svokallaðir kjörmenn sem kjósa forsetann. Það er að segja að í hverju ríki er ákveðinn fjöldi kjörmanna og kjósa þeir forsetann á sérstökum fundi þegar landsmenn hafa kosið. Það er síðan mismunandi á milli ríkjanna hvaða reglur gilda um skiptingu kjörmannanna. Í sumum ríkjum ræður hlutfall atkvæða því hversu margir kjörmenn falla frambjóðendum í hlut en í öðrum fær sá frambjóðandi, sem fær flest atkvæði, alla kjörmennina.

Kjörmannakerfið hefur í för með sér að það er ekki endilega sá frambjóðandi sem fær flest atkvæði sem verður forseti. Kosningarnar ganga út á að tryggja sér minnst 270 kjörmenn til að verða kjörinn forseti. Í þessu sambandi má nefna að í kosningunum 2016 fékk Hillary Clinton næstum því þremur milljónum fleiri atkvæði en Donald Trump en hann fékk hins vegar 304 kjörmenn en hún 207.

Það er nánast útilokað að breyta kjörmannakerfinu því það þarf stuðning tveggja þriðju hluta þingmanna í hvorri deild þingsins til að breyta stjórnarskránni. Þess utan þurfa 38 af 50 ríkjum landsins að samþykkja breytinguna. Þetta er nánast útilokað þrátt fyrir stórsigur Demókrata.

Það er til önnur leið

En það er önnur leið sem er hægt að fara til að ná þessu markmiði. Hún gengur út á samning á milli margra ríkja og er kölluð „National Popular Vote Interstate Compact“ (NPVIC).

Í samningnum felst að ríkin, sem eru aðilar að honum, heita því að kjörmenn þeirra muni falla þeim frambjóðanda í hlut sem fær flest atkvæði á landsvísu, óháð hver sigrar í viðkomandi ríki.

Samningurinn tekur þó ekki gildi fyrr en aðildarríki samningsins ráða yfir minnst 270 kjörmönnum en það er sá fjöldi sem þarf til að tryggja sér forsetaembættið.

18 ríki, sem Demókratar fara með völdin í, og höfuðborgin Washington D.C. hafa nú þegar gerst aðilar að samningum, nú síðast Virginía, en þau ráða yfir 222 kjörmönnum.

Í kosningunum tryggðu Demókratar sér völdin í fimm ríkjum til viðbótar með því að fá ríkisstjóraembættið og meirihluta í báðum deildum ríkisþinganna. Þetta eru sveifluríkin Pennsylvania, Michigan, Wisconsin, Nevada og Arizona. Þau ráða samtals yfir 81 kjörmanni. Ef öll fimm, eða bara fjögur, gerast aðilar að samningnum, þá dugir kjörmannafjöldinn til að virkja samninginn.

Dave Carell, fyrrum ræðuritari Barack Obama og Kamala Harris, sagði þetta vera bakdyrnar að því að losna við kjörmannakerfið. Með sigrinum í svo mörgum ríkjum hafi Demókratar fengið óvænt tækifæri til að koma þessari breytingu í gegn.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅