Mikið áfall fyrir Keflavík
Svíinn Ali Dibba hefur slitið hásin og leikur ekki meira með Keflavík í úrvalsdeild karla í körfubolta á þessari leiktíð.
Atvikið átti sér stað í leik Keflavíkur gegn Stjörnunni í gærkvöldi, en þetta er aðeins annar leikur hans með liðinu síðan hann gekk til liðs við það fyrir rúmri viku.
„Þetta er náttúrulega mjög leitt, hugur minn er hjá honum. Þetta er sár raunveruleiki íþróttafólks, að lenda í meiðslum og því miður var það í þessu tilfelli hjá Ali,“ sagði Daníel Guðni Guðmundsson í samtali við Vísi á dögunum.
Keflavík situr nú í fjórða sæti deildarinnar með átta stig en liðið hefur unnið fjóra leiki og tapað tveimur.
Ali er 25 ára gamall og áður en hann kom til Íslands spilaði hann í bandaríska háskólakörfuboltanum og lék síðast með Texas A&M þar sem hann skoraði að meðaltali 5,7 stig í leik á 16 mínútum.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗