Allt fór á hliðina þegar skipta átti um koparstreng

Vinna við að skipta út gömlum koparstreng fyrir ljósleiðara er talin hafa valdið víðtækri röskun á flugumferð í Bandaríkjunum í gær.

Að sögn Bandaríkjastjórnar má rekja vandann annaðhvort til mistaka verktaka eða bilaðs búnaðar.

Flugumferð er hófst á ný eftir fjögurra klukkustunda flugtakbann en enn er búist við umfangsmiklum töfum og aflýsingum. Bryan Bedford, yfirmaður bandarísku flugmálastofnunarinnar, FAA, sagði að 12 þúsund flugferðum hefði verið aflýst í gær.

Hann taldi líklegt að fjögur til fimm þúsund ferðum yrði einnig aflýst í dag, af alls 41 þúsund áætluðum ferðum. Bedford bað flugfarþega í Bandaríkjunum einlæglega afsökunar á blaðamannafundi í Washington.

Hundruð þúsunda farþega vissu ekki hvenær þeir kæmust á áfangastað þegar flugtak var stöðvað um land allt í gær. AFP

„Þreytt. Úrvinda. Pirruð.“

Hundruð þúsunda farþega vissu ekki hvenær þeir kæmust á áfangastað þegar flugtak var stöðvað um land allt í gær. Sumir voru látnir fara frá borði rétt fyrir brottför af starfsfólki flugfélaga sem virtist sjálft illa upplýst um hvað væri að gerast.

„Þreytt. Úrvinda. Pirruð. Já, þetta er bara algjört kaos, er það ekki?“ sagði Lisa Beraid, 48 ára starfsmaður tryggingafélags, við AFP-fréttastofuna. Hún beið eftir flugi á LaGuardia-flugvellinum í New York í morgun.

Myndir frá flugvöllum sýndu þéttsetin brottfararhlið, flugvélar sem biðu á akbrautum og mannfjölda í flugstöðvum þar sem farþegar reyndu í örvæntingu að afla upplýsinga.

Flugtakbanninu var aflétt klukkan 1.15 í nótt að íslenskum tíma.

Flugtakbanninu var aflétt klukkan 1.15 í nótt að íslenskum tíma. AFP

Fjarskipti og ratsjárgögn urðu fyrir truflunum

Sean Duffy samgönguráðherra sagði að flugtakbannið hefði verið sett eftir að vinna við að skipta út gömlum koparstreng fyrir háhraðaljósleiðara hefði truflað fjarskipti við flugvélar og miðlun ratsjárgagna.

Annaðhvort hefðu mistök verktaka eða bilaður búnaður orðið til þess að aðrir beinar í flugumferðarstjórnkerfinu yfirhlóðust af gögnum, að sögn ráðherrans.

Tæknivandamál settu einnig mark sitt á blaðamannafund stjórnvalda í dag. Honum seinkaði vegna bilunar í hljóði, á sama tíma og embættismenn kölluðu eftir auknu fé til að endurnýja úrelt kerfi.

Sumir voru látnir fara frá borði rétt fyrir brottför af starfsfólki flugfélaga sem virtist sjálft illa upplýst um hvað væri að gerast. AFP

Áfram búist við töfum

Flugtakbanninu var aflétt klukkan 1.15 í nótt að íslenskum tíma. Að sögn Duffy hafði þá tekist að koma starfsemi flugumferðarstjórnar að fullu í lag.

Þetta var aðeins í annað sinn frá hryðjuverkaárásunum 11. september 2001 sem slíkt flugtakbann hefur verið sett um öll Bandaríkin.

Duffy lagði í morgun áherslu á að öruggt væri að fljúga en varaði við því að það tæki tíma að koma flugumferð í eðlilegt horf.

„Áfram verða einhverjar tafir og aflýsingar á meðan flugfélög endurskipuleggja flugáætlanir og flytja flugvélar og áhafnir þangað sem mest er þörf á þeim,“ skrifaði hann á X.

Tim Johnson, yfirmaður neytendamála hjá bresku flugmálastofnuninni, sagði einnig að búast mætti við áframhaldandi röskun meðan flugfélög endurbókuðu ferðir farþega og kæmu starfseminni aftur í eðlilegt horf.

„Enginn býst við að allt flugkerfið fari niður“

Farþegar á LaGuardia tóku áframhaldandi röskun með misjafnlega miklu jafnaðargeði.

„Við erum föst hér næstu, ég veit ekki, 36 klukkustundirnar,“ sagði Pat Curlett, 62 ára starfsmaður Ford, snemma í morgun.

Steven Rathe, 77 ára, beið þess að leggja af stað frá New York til Albuquerque. Ferðin átti að vera í fjórum flugleggjum.

„Enginn býst við að allt flugkerfið fari niður,“ sagði hann.

„Við erum heppin að þetta stóð ekki lengur. Það er flogið í dag og fyrir það er ég þakklátur.“

Vill 6.180 milljarða til endurnýjunar

Röskunin hefur vakið alvarlegar spurningar um ástand aldraðra innviða Bandaríkjanna.

Duffy kallaði eftir 50 milljörðum Bandaríkjadala til að endurnýja og nútímavæða flugumferðarstjórnkerfið. Það jafngildir um 6.180 milljörðum króna miðað við nýjasta skráða viðmiðunargengi Seðlabanka Íslands, frá 13. nóvember. Hann hvatti Bandaríkjaþing, sem fer með fjárveitingavaldið, til að bregðast við.

„Hættu þessu bulli,“ svaraði JB Pritzker, ríkisstjóri Illinois og áberandi demókrati, á X. Hann sagði Donald Trump Bandaríkjaforseta og Repúblikanaflokkinn hafa ráðið þinginu og getað tryggt kerfinu fjármagn.

Þingmenn kölluðu eftir rannsóknum á orsökum röskunarinnar og því hvort varnir landsins gegn netglæpum væru fullnægjandi.

Eric Schmitt, öldungadeildarþingmaður Repúblikanaflokksins, sagði ekki lengur hægt að fresta aðgerðum.

„Ef dagurinn í dag sýnir okkur eitthvað er það að við þurfum að uppfæra flugumferðarstjórnkerfið og endurbyggja flugvallainnviðina,“ skrifaði hann á X.

Trump hafði sjálfur óvenju hljótt um röskunina, sem hafði einnig áhrif á millilandaflug til og frá Bandaríkjunum. Þegar komið var fram á hádegi í dag að staðartíma hafði hann ekki tjáð sig opinberlega um flugtakbannið.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅