Raphinha og Ancelotti sáu rautt er Japan felldi Brasilíu

Vinicious Junior skoraði bæði mörk Brassa í dag.

Vinicious Junior skoraði bæði mörk Brassa í dag. AFP/Roslan Rahman

Brasilía mátti þola tap gegn Japan, 3:2, í vináttulandsleik þjóðanna í knattspyrnu í Japan fyrr í dag.

Brasilía stillti ekki upp sínu sterkasta liði í dag en samt sem áður voru nokkrir stjörnuleikmenn í byrjunarliðinu, eins og Vínicius Junior, Gabriel og Bruno Guimaraes.

Japanar byrjuðu af miklum krafti og komust í tveggja marka forystu eftir aðeins 19 mínútur áður en Vinicious Junior jafnaði minnkaði muninn stuttu seinna.

Vini var síðan aftur á ferðinni á 75. mínútu og jafnaði hann metin en Tatshurio Sakamoto skoraði sigurmark Japana á fyrstu mínútu uppbótartíma. 

Í aðdraganda sigurmarksins fannst Brössum hins vegar vera brotið á Joao Gomes og kröfðust þeir þess að markið yrði dæmt af. Það var ekki gert og fengu stjörnuleikmaður Barcelona, Raphinha, og Carlo Ancelotti, þjálfari Brasilíu, rauð spjöld fyrir að kvarta yfir óþarfa mikið yfir dómnum.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅