Sara og táningarnir gengu frá Sviss

Ísland hafði betur gegn Sviss, 100:82, í öðrum leik sínum í forkeppni undankeppninnar fyrir EM 2029 er liðin mættust í Ólafssal á Ásvöllum í dag.

Ísland hefur unnið báða leiki sína til þessa og mætir Aserbaídsjan á sama stað næstkomandi þriðjudag.

Íslenska liðið byrjaði með látum og var staðan 14:1 eftir aðeins fjórar mínútur. Sviss komst aðeins betur inn í leikinn og var staðan eftir fyrsta leikhluta 25:19.

Thelma Dís Ágústsdóttir með boltann í dag.

Thelma Dís Ágústsdóttir með boltann í dag. mbl.is/Anton Brink

Sviss byrjaði annan leikhluta á að minnka muninn í tvö stig, 27:25. Íslenska liðið svaraði með látum því nokkrum mínútum síðar var staðan orðin 50:30.

Þegar fyrri hálfleikurinn var allur var staðan 55:40. Sara Rún Hinriksdóttir skoraði átján stig í fyrri hálfleik, Berglind Katla Hlynsdóttir gerði 13 og Thelma Dís Ágústsdóttir kom næst með níu stig.

Rebekka Rut Steingrímsdóttir byrjaði með látum í seinni hálfleik og átti stóran þátt í að staðan var 64:47 þegar þriðji leikhluti var tæplega hálfnaður. Þá kom góður kafli hjá Sviss sem breytti stöðunni í 66:53.

Ásta Júlía Grímsdóttir í hasar í dag.

Ásta Júlía Grímsdóttir í hasar í dag. mbl.is/Anton Brink

Liðin skiptust nokkurn veginn á því að skora eftir það og var staðan fyrir fjórða og síðasta leikhlutann 74:60, Íslandi í vil.

Rebekka Rut skoraði glæsilegan þrist þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir og kom Íslandi í 89:76. Svissland var ekki líklegt til að jafna eftir það og sterkur sigur íslenska liðsins varð staðreynd.

Sara Rún Hinriksdóttir var stigahæst í íslenska liðinu með 31 stig, Berglind Katla Hlynsdóttir kom næst með 23 og Rebekka Rut Steingrímsdóttir gerði 20. 

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅