Raphinha og Ancelotti sáu rautt er Japan felldi Brasilíu
Brasilía mátti þola tap gegn Japan, 3:2, í vináttulandsleik þjóðanna í knattspyrnu í Japan fyrr í dag.
Brasilía stillti ekki upp sínu sterkasta liði í dag en samt sem áður voru nokkrir stjörnuleikmenn í byrjunarliðinu, eins og Vínicius Junior, Gabriel og Bruno Guimaraes.
Japanar byrjuðu af miklum krafti og komust í tveggja marka forystu eftir aðeins 19 mínútur áður en Vinicious Junior jafnaði minnkaði muninn stuttu seinna.
Vini var síðan aftur á ferðinni á 75. mínútu og jafnaði hann metin en Tatshurio Sakamoto skoraði sigurmark Japana á fyrstu mínútu uppbótartíma.
Í aðdraganda sigurmarksins fannst Brössum hins vegar vera brotið á Joao Gomes og kröfðust þeir þess að markið yrði dæmt af. Það var ekki gert og fengu stjörnuleikmaður Barcelona, Raphinha, og Carlo Ancelotti, þjálfari Brasilíu, rauð spjöld fyrir að kvarta yfir óþarfa mikið yfir dómnum.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗