Sara og táningarnir gengu frá Sviss
Ísland hafði betur gegn Sviss, 100:82, í öðrum leik sínum í forkeppni undankeppninnar fyrir EM 2029 er liðin mættust í Ólafssal á Ásvöllum í dag.
Ísland hefur unnið báða leiki sína til þessa og mætir Aserbaídsjan á sama stað næstkomandi þriðjudag.
Íslenska liðið byrjaði með látum og var staðan 14:1 eftir aðeins fjórar mínútur. Sviss komst aðeins betur inn í leikinn og var staðan eftir fyrsta leikhluta 25:19.
Sviss byrjaði annan leikhluta á að minnka muninn í tvö stig, 27:25. Íslenska liðið svaraði með látum því nokkrum mínútum síðar var staðan orðin 50:30.
Þegar fyrri hálfleikurinn var allur var staðan 55:40. Sara Rún Hinriksdóttir skoraði átján stig í fyrri hálfleik, Berglind Katla Hlynsdóttir gerði 13 og Thelma Dís Ágústsdóttir kom næst með níu stig.
Rebekka Rut Steingrímsdóttir byrjaði með látum í seinni hálfleik og átti stóran þátt í að staðan var 64:47 þegar þriðji leikhluti var tæplega hálfnaður. Þá kom góður kafli hjá Sviss sem breytti stöðunni í 66:53.
Liðin skiptust nokkurn veginn á því að skora eftir það og var staðan fyrir fjórða og síðasta leikhlutann 74:60, Íslandi í vil.
Rebekka Rut skoraði glæsilegan þrist þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir og kom Íslandi í 89:76. Svissland var ekki líklegt til að jafna eftir það og sterkur sigur íslenska liðsins varð staðreynd.
Sara Rún Hinriksdóttir var stigahæst í íslenska liðinu með 31 stig, Berglind Katla Hlynsdóttir kom næst með 23 og Rebekka Rut Steingrímsdóttir gerði 20.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
