„Þetta hefur aldrei áður gerst í mannkynssögunni“

Hilmar Veigar Pétursson segir spennandi tíma framundan hjá Fenris Creations.

Hilmar Veigar Pétursson segir spennandi tíma framundan hjá Fenris Creations. Morgunblaðið/Karítas

Spennandi tímar eru framundan hjá Fenris Creations, en að sögn Hilmars Veigars Péturssonar, forstjóra fyrirtækisins, er nú unnið að alls kyns samstörfum við helstu gervigreindarfyrirtæki heimsins er snúa að gervigreindarrannsóknum og þjálfun hennar.

Í færslu á Facebook greinir Hilmar frá samstarfsverkefni Fenris Creations og gervigreindarfyrirtækisins Anthropic. Hefur hann einnig skrifað ritgerð um verkefnið sem ber heitið „Hver erfir stjörnurnar?“ eða „Who inherits the stars?“.

Finna má ritgerðina hér.

Þjálfunarbúðir fyrir gervigreind

Í samstarfsverkefni Fenris Creations og Anthropic voru teymi Claude-gervigreindarfulltrúa send inn í tölvuleikinn EVE frontier og var einum þeirra meðal annars skipað í laumi að svíkja sitt teymi.

Í samtali við mbl.is segir Hilmar að fyrirtækið vinni nú að fleiri samstörfum við þróun frekari gervigreindarrannsókna þar sem notast er við tölvuleiki fyrirtækisins sem eins konar „þjálfunarbúðir“ fyrir gervigreindina.

Þessar þjálfunarbúðir falli inn í fyrirbærið EVE AI Lab sem Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir leiðir.

Áslaug Arna leiðir EVE AI Lab.

Áslaug Arna leiðir EVE AI Lab. Morgunblaðið/Karítas

Gervigreindin nýtist til góðs

„Mikið til erum við að beina þessum rannsóknum að öllu sem kemur að öryggi gervigreindar og því að gervigreindin sé til góðs,“ segir Hilmar.

„Það er hægt að gera alls konar tilraunir í svona sýndarveruleikaheimum sem erfitt er að gera í raunveruleikanum. Það getur reynst dýrt að gera mistök í raunveruleikanum eins og við höfum verið að sjá þar sem gervigreind er að brjótast inn í tölvukerfi og annað slíkt.“

Meira og meira séu fyrirtæki því að leita að einhvers konar „sandkössum“ þar sem hægt sé að prófa gervigreindina.

„Eins og í þessu tilfelli með Anthropic, einn er að svindla, hvernig bregðast hinir við? Hvernig bregst gervigreindin við þegar henni er sagt að vera svindlari, hvernig framkvæmir hún það og annað slíkt,“ segir Hilmar.

Saga tölvuleikja og gervigreindarinnar

Hilmar segir tölvuleiki hafa spilað lykilhlutverk í sögu og þróun gervigreindar. Nefnir hann meðal annars þegar Deep Blue sigraði Kasparov í skák og fleiri dæmi í Facebook-færslu sinni.

Í því samhengi hefur hann talað um tölvuleikinn EVE online sem ákveðna lokaþraut fyrir gervigreindina.

Minnist hann samtals sem hann átti fyrir um tíu árum við Demis Hassabis, stofnanda gervigreindarfyrirtækisins Deepmind, en á þeim tíma var gervigreind Deepmind að spila tölvuleikinn StarCraft.

„Þá töluðum við um að ef það væri einhvers konar „endakall“ eða „final boss“ fyrir gervigreindina af öllum tölvuleikjum þá væri það EVE online.“

Hasar og spenna

Hilmar segir mikinn hasar og spennu einkenna starfsemi fyrirtækisins er kemur að gervigreindinni.

„Þetta er rosalega spennandi en þetta er alveg svakalegur hasar, maður hefur verið í þessu í nokkra áratugi en ég hef aldrei séð annað eins. Þetta hefur aldrei áður gerst í mannkynssögunni, að það séu svona miklar breytingar með hverjum mánuðinum sem líður.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅